Þekktur andstæðingur bólusetninga talar hjá Gló Kjartan Kjartansson skrifar 16. júní 2017 20:45 Veitingastaðurinn Gló verður vettvangur fyrirlestrar Davids Wolfe í næstu viku. Vísir/Getty
Heilsugúru með milljónir fylgjenda á samfélagsmiðlum sem hefur ítrekað talað gegn bólusetningum og ýjað að því að krabbameinsrannsóknir séu fals er væntanlegur til Íslands til að tala á heilsuveitingastaðnum Gló. Fulltrúar fyrirtækisins vilja ekki svara spurningum um Wolfe en segja fyrirlesturinn ekki á þess vegum. David „lárpera“ Wolfe er bandarískur sjálfskipaður heilsugúrú sem er með yfir tíu milljónir fylgjenda á Facebook. Í umfjöllun Forbes um hann þar sem varað er við boðskapi hans er vitnað til vefsíðu Wolfe þar sem hann lýsir sjálfum sér sem „rokkstjörnu og Indiana Jones ofurfæðis- og langlífisheimsins“. Hann ætlar að tala um heilsu og lífsstíl á svonefndri Ljósvöku sem haldin verður á veitingastað Glóar í Fákafeni í næstu viku. Viðburðurinn er auglýstur á viðburðasíðunni Enter.is.Rangar fullyrðingar um meinta skaðsemi bólusetningaFullyrðingar Wolfe um heilsutengd málefni sem önnur eru hins vegar hreinlega rangar og í besta falli afar vafasamar. Hann hefur þannig ítrekað talað gegn bólusetningum, þar á meðal með löngu hröktum fullyrðingum um að þær valdi einhverfu, og fór meðal annars í ferð um Ástralíu á vegum samtaka sem berjast gegn þeim í vor. Fjölda greina gegn bólusetningum má finna á vefsíðu Wolfe. Í grein á vefsíðu sinni heldur Wolfe því til dæmis ranglega fram að „vaxandi vísbendingar bendi til þess að bólusetningar séu ekki öruggar og að þær geti meitt, varanlega örkumlað eða jafnvel drepið þig eða ættingja þinn“. Þá hefur hann dreift efni til fjölmargra fylgjenda sinna um að krabbameinsrannsóknir séu fals auk þess að selja ýmsan varning með vafasömum fullyrðingum um virkni og meinta gagnsemi hans.Vilja ekki svara spurningum um fyrirlesturinn Markaðsfulltrúi Glóar sagðist ekki mega svara neinum spurningum um fyrirlestur Wolfe á veitingastaðnum þegar Vísir leitaði viðbragða fyrirtækisins. Þess í stað vísuðu stjórnendur hans til skriflegrar yfirlýsingar þar sem fram kemur að fyrirlestur Wolfe sé ekki á þeirra vegum. Skoðanir Wolfe séu á hans eigin ábyrgð og hann muni ekki fjalla um bólusetningar í fyrirlestrinum. Viðburðurinn er ekki auglýstur á vefsíðu eða Facebook-síðu Glóar. Ekki er hægt að sjá á Enter.is hver stendur fyrir fyrirlestrinum nú að öðru leyti en að hann verði haldinn á veitingastaðnum. Þetta er hins vegar ekki í fyrsta skipti sem Wolfe talar hjá Gló. Á Facebook-síðu staðarins má finna auglýsingu fyrir námskeið með Wolfe sem fór fram 13. nóvember í fyrra. Í lýsingu á viðburðinum er Wolfe meðal annars kallaður „snillingur“. Skráning á þann viðburð fór fram í gegnum vefsíðu Glóar samkvæmt Facebook-viðburðinum. Skráningarsíðunni hefur síðan verið lokað. Á bloggsíðu Glóar má einnig finna viðtal við Wolfe um næringarmál. Það birtist 10. nóvember í fyrra.Sólveig Eiríksdóttir, stofnandi og einn eigenda Gló, segist vera vinkona og samstarfskona Wolfe á Íslandi.Vísir/StefánÍtrekað komið og talað hjá GlóVið lauslega athugun Vísis kom einnig í ljós að Sólveig Eiríksdóttir, sem titluð er yfir matarhönnun og nýsköpun Glóar, flutti Wolfe til landsins árið 2010. Í viðtali sem birtist í Fréttablaðinu 14. nóvember er Sólveig sögð „vinkona og samstarfskona“ Wolfe á Íslandi. Sunnudagsmogginn sagði einnig frá tveimur fyrirlestrum Wolfe hjá Gló árið 2012 þar sem talað var við hann og Sólveigu. „Þrátt fyrir að fólk skilji ekki hvað hann er að segja kemst enginn ósnortinn frá David Wolfe. Hann er með einstaka útgeislun og hefur mjög sérstök áhrif á fólk,“ er haft eftir Sólveigu þar. Eftir að Wolfe kom fram í Kastljóssþætti á RÚV í nóvember árið áður skrifuðu Ólafur G. Sæmundsson, næringarfræðingur, og Ólafur Sigurðsson, matvælafræðingur, grein í Fréttablaðið þar sem þeir vefengdu boðskap Wolfe.Sterk rödd sem dreifir stórhættulegum áróðri„Mér finnst ekki rétt að gefa svona manni vettvang sem er opinberlega á móti bólusetningum,“ segir Brynjar Örn Ellertsson, lífefnafræðingur sem heldur úti Facebook-síðunni Vísindamaðurinn. Þar hafa birst færslur þar sem vakin er athygli á málflutningi Wolfe. Brynjar segir að Wolfe hafi byrjað sem nokkurs konar krúttlegur hippi sem talaði um heilsusafa. Síðan þá hafi hann hins vegar eignast sterka rödd hjá ógrynni fylgjenda á samfélagsmiðlum. „Hann er ekki lengur krúttlegur hippi heldur stór rödd sem nýtir hana til þess að dreifa stórhættulegum áróðri,“ segir Brynjar Örn.Telur sveppi geta flotið út úr sólkerfinuTorkennilegar hugmyndir Wolfe ná ekki aðeins til heilsutengdra málefna. Hann hefur meðal annars sagt að þyngdaraflið sé eiturefni og talað um að jörðin sé í raun flöt. Hann hefur einnig haldið því fram að sveppir geti svifið upp af jörðinni og skotist úr úr sólkerfinu. Brynjar segir að enginn læknir eða raunverulegur næringarfræðingur gæti staðfest það sem Wolfe heldur fram um heilsutengd mál heldur. Yfirlýsingin Glóar um fyrirlestur Wolfe í heild sinni er svohljóðandi:Að gefnu tilefni vill Gló taka fram að fyrirlestur David Wolf[e] þann 21. júní n.k. er ekki á vegum Gló, hvorki miðasala né skipulagning. Fyrirlesturinn er hluti af ferð David Wolf[e] adventures með hóp erlendra ferðamanna um Ísland. David leigir fyrirlestrarsal Gló í Fákafeni eins og fjöldi annarra fyrirlesara á ári hverju. Skoðanir fyrirlesara eru á þeirra ábyrgð en ekki ábyrgð Gló. Rétt er að taka fram að við höfum fengið staðfest að fyrirhugaður fyrirlestur David Wolf mun ekki fjalla um bólusetningar heldur um súperjurtir í íslenskri náttúru og heilbrigða bakteríuflóru.
Matur Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar eldflaugar innan nokkurra mánaða Erlent Fleiri fréttir Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Sjá meira