Þriðji réttur veislunnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2017 06:00 Steph Curry hjá Golden State og LeBron James hjá Cleveland eru mjög mikilvægir sínum liðum. Fréttablaðið/Getty
Það hefur lengi stefnt í það að Golden State Warriors og Cleveland Cavaliers mætist í lokaúrslitum NBA-deildarinnar og eftir alltof mörg sóp í fyrri umferðum úrslitakeppninnar og dágóða bið frá því að úrslit deildanna kláruðust er óhætt að segja að körfuboltafólk þyrsti í alvöru úrslitaeinvígi.24 sigrar í 25 leikjum í ár Í kvöld er loksins komið að þessu. Það eru tíu dagar síðan Golden State sópaði San Antonio Spurs út og sjö dagar síðan meistararnir í Cleveland afgreiddu Boston Celtics sannfærandi í þriðja leiknum í röð í Boston Garden. Það að þessi lið séu búin að vinna 24 af 25 leikjum sínum í úrslitakeppninni ætti að þýða að bæði koma fersk til leiks í Oracle Arena í Oakland. Í raun hefur ekki reynt almennilega á þessi tvö frábæru lið. Golden State Warriors hefur unnið alla tólf leiki sína og eina tap Cleveland kom þegar liðið mætti til leiks „án“ LeBron James. James var eitthvað veiklulegur og hafi einhver efast um mikilvægi kappans þá heyrir sá efi líklega sögunni til eftir að í ljós kom hvað Cavs gerir án alvöru framlags frá sínum besta manni. Liðsmenn Golden State Warriors hljóta samt að mæta til leiks í miklum hefndarhug. Hvað annað er hægt eftir lokaúrslitin í fyrra. Eftir besta tímabil sögunnar vantaði Golden State bara krúnuna til að geta kallað sig besta lið allra tíma.3-1 varð að 3-4 Liðið var 3-1 yfir og fékk þrjá leiki til að landa síðasta sigrinum og tryggja sér NBA-titilinn annað árið í röð. En viti menn. Þeim tókst að gera lítið úr manndómi LeBron James sem svaraði með einni mögnuðustu þriggja leikja frammistöðu í sögu lokaúrslitanna. Þegar upp var staðið hafi James og félögum tekist að koma til baka og vinna fyrsta NBA-titil Cleveland Cavaliers. Það er ekki alveg sama Golden State lið sem mætir til leiks í ár. Auðvitað verða alltaf einhverjar mannabreytingar á milli tímabila en nú mæta Warriors í lokaúrslitin búnir að bæta við sig einum besta körfuboltamanni heims. Það besta við það að mæta til leiks með Kevin Durant er að hann er líklegast hungraðasti maðurinn á vellinum í titil enda einn af fáum leikmönnum liðanna sem á ekki hring. Bestu fréttirnar fyrir Warriors er að stórstjörnurnar Kevin Durant og Stephen Curry blómstra nú hvor við annars hlið en þeir eru að skora saman 53,8 stig að meðaltali í leik í úrslitakeppninni. Báðir hafa tapað einu sinni fyrir LeBron, Curry 2016 og Durant 2012, og ætla ekki að láta það gerast aftur.Súperframmistaða súperstjörnu LeBron James leiddi Cleveland til sigurs fyrir ári síðan og er þegar búinn að skrifa NBA-söguna í þessari úrslitakeppni með því að bæta stigamet Michael Jordan. James þurfti vissulega fleiri leiki en um leið færri skot til að ná átrúnaðargoði sínu. MJ er enn með þrjá fleiri titla en James og LeBron þarf nú að sýna meira af því sem hann sýndi í síðustu þremur leikjum lokaúrslitanna í fyrra ætli hann að minnka forskot Mikes í ár. James var með 35,7 stig (55 prósent skotnýting), 12,3 fráköst og 9,0 stoðsendingar að meðaltali í leik í þremur síðustu leikjum lokaúrslitanna í fyrra. Við þeirri frammistöðu átti Warriors-liðið fá svör og missti frá sér titilinn. Spekingar eru samt flestir á því að Golden State Warriors vinni NBA-titilinn í ár, bara spurning um hvort það verði 4-3, 4-1 eða jafnvel 4-0. Austurdeildin þykir meðal margra vera aðeins hálfdrættingur á við Vesturdeildina og því er ekki erfitt að draga þá ályktun að lið sem kemur 12-0 í gegnum Vesturdeildina eigi sigurinn vísan.Að steypa kónginum af stóli Lokaúrslit NBA-deildarinnar snúast hins vegar oftast um frammistöðu súperstjarnanna og á úrslitastundu í fyrra réðu Warriors-menn ekkert við James eða Kyrie Irving. Nú eru þeir hins vegar búnir að bæta við einum vænum vinstri krók með Kevin Durant. Boltaflæðið og breiddin er vissulega enn Warriors-megin en þeir þurfa þurfa að steypa kónginum af stóli og það er ekki létt verk. Eitt er víst, leikurinn í kvöld er skylduáhorf fyrir allt NBA-áhugafólk. Innbyrðisleikir liðanna voru varla marktækir vegna meiðsla, þreytu eða fjarveru leikmanna og þetta eru því fyrstu alvöru leikir tveggja bestu liða heims í eitt ár. Það er komið að þriðja rétti í körfuboltaveislu þessara liða og við fylgjumst spennt með á Stöð 2 Sport.
NBA Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Fleiri fréttir Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Sjá meira