Rúmlega hundrað almennir borgarar féllu í loftárás á Mósúl Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 26. maí 2017 07:00 Hart hefur verið barist í Mósúl. Nordicphotos/AFP
Rúmlega hundrað almennir borgarar féllu þegar bandaríski herinn gerði loftárás á íröksku borgina Mósúl í mars síðastliðnum. Skotmark árásarinnar voru tvær leyniskyttur Íslamska ríkisins og var nákvæmnissprengjum skotið að þeim. Hins vegar varð höggið frá þeim tiltölulega litlu sprengjum til þess að sprengjur sem liðsmenn Íslamska ríkisins höfðu komið fyrir í byggingunni sprungu einnig. Við sprenginguna hrundi byggingin og fórust almennir borgarar á neðri hæðum hennar. Þá fórust einnig fjórir til viðbótar í nærliggjandi byggingu. Í skýrslu bandaríska hersins segir að ekki hafi verið hægt að spá fyrir um staðsetningu almennra borgara í byggingunni áður en árásin var gerð. Þá kemur fram að sprengjur Íslamska ríkisins hafi verið fjórum sinnum aflmeiri en sprengjurnar sem herinn notaði, hið minnsta. „Hugur okkar er hjá hinum látnu, særðu og aðstandendum,“ segir í yfirlýsingu frá Bandaríkjaher. Írakski herinn hefur leitt baráttuna gegn Íslamska ríkinu í Mósúl undanfarið. Náði hann austurhluta borgarinnar á sitt vald í janúar en erfiðlega hefur gengið í vesturhlutanum. Þar skýla vígamenn ISIS sér á bakvið almenna borgara og þurfa Írakar að sækja án skriðdreka og bíla vegna þess hve götur eru þröngar.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Sjá meira