Lífið

Kvennakór Reykjavíkur syngur inn sumarið í kvöld

Guðný Hrönn skrifar
Kvennakór Reykjavíkur heldur uppi stuðinu í Guðríðarkirkju í kvöld.
Kvennakór Reykjavíkur heldur uppi stuðinu í Guðríðarkirkju í kvöld.
Kvennakór Reykjavíkur ætlar að syngja inn sumarið í kvöld með tónleikum þar sem fjölbreytt tónlist verður tekin fyrir. Meðal þess er nýtt lag eftir tónskáldið Halldór Smárason.

Við fögnum vori og íslenskri sumarblíðu með tónlist í takti við veður. Fjölbreytt, heillandi, sefandi en umfram allt lífleg og fjörleg,“ segir Svanhildur Sverrisdóttir, ein meðlima Kvennakórs Reykjavíkur um sumartónleikana sem kórinn heldur í kvöld.

„Við munum taka allt frá þekktum dægurlögum Abba, Bítlanna, Lennons og Queen til ungverskra þjóðlaga og svo laga með ryþma-klappi þar sem sannarlega reynir á samhæfni, húmor og danshæfileika. Einnig flytjum við gullfallegt nýtt lag eftir Halldór Smárason við ljóð Haralds Stígssonar, Minningarbrot, sem frumflutt var um síðustu helgi á landsmóti íslenskra kvennakóra á Ísafirði.“

Lögin eru valin af kórstjóranum Ágotu Joó. „Hún hikar ekki við að fara ótroðnar slóðir og takast á við frumlegar og krefjandi útsetningar. Um undirleik sjá svo Birgir Bragason á bassa, Erik Robert Qvick á slagverk og Vilberg Viggósson á píanó. “

„Við munum dusta rykið af óborganlegu skúringanúmeri,“ segir Svanhildur. Spurð nánar út í hvað það þýðir segir hún: „Hið óborganlega skúringanúmer er flutningur á laginu Three ways to vacuum your house eftir Stephen Hatfield og fjallar um duglegar húsmæður sem sannarlega standa sig í stykkinu við heimilisþrifin en rasa svo út inn á milli. Kórinn býður tónleikagestum þar upp á tilþrif hvað varðar spor og hreyfingar og jafnvel búninga,“ útskýrir Svanhildur sem lofar góðri skemmtun.

„Kvennakór Reykjavíkur hefur unnið til verðlauna fyrir framúrskarandi flutning á fjölbreyttri tónlist. Hann æfir af miklum metnaði og tekst á við fjölþjóðlega tónlist á ýmsum tungumálum,“ bætir hún við að lokum.

Þess má geta að tónleikarnir eru haldnir í Guðríðarkirkju og hefjast klukkan 20.00. Miðaverð er 3.000 krónur í forsölu en 3.500 krónur við innganginn.

Athugið að í Fréttablaðinu í dag var sagt frá því að tónleikarnir væru á morgun en hið rétta er að þeir eru í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.