Íslenski boltinn

Þór/KA rotar risana

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr leik hjá Þór/KA á síðustu leiktíð.
Úr leik hjá Þór/KA á síðustu leiktíð. vísir/anton
Þór/KA hefur tímabilið í Pepsi-deild kvenna með miklum látum og gefur öllum spám sérfræðinga langt nef. Í kvöld fengu Blikastúlkur að kenna á því.

Hulda Ósk Jónsdóttir skoraði mark Þór/KA í 1-0 sigri á Blikum í Boganum í kvöld. Markið kom á 10. mínútu.

Þór/KA er því á toppi deildarinnar og er búið að vinna liðin sem spáð var efstu tveimur sætum deildarinnar.

Í fyrstu umferð vann Þór/KA 1-0 sigur á Valsstúlkum og endurtók leikinn í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×