Darth Vader er raunverulegur og við hestaheilsu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 4. maí 2017 21:45 Fregnir af andláti Darth Vader eru stórlega ýktar. Vísir/Skjáskot
Margir halda að Darth Vader hafi látið lífið í orrustunni um Endor en svo er ekki þar sem hann er við hestaheilsu og býr í rauninni í Tennessee ríki í Bandaríkjunum. Í dag er hinn alþjóðlegi Star Wars dagur og því hafa augu heimsins beinst að hinum 39 ára gamla Darth Vader sem ber nafnið eftir hinum alræmda Svarthöfða úr hinum heimsfrægu Star Wars myndum. Hann vinnur eins og áður segir á spítala í Tennessee og gegnir starfi aðstoðarmanns skurðlæknis á St. Francis spítalanum. Darth Vader fæddist árið 1978, einungis ári eftir að fyrsta Star Wars myndin kom út og ákváðu foreldrar hans að gefa honum þetta merkilega nafn.Pabbi minn var mikill Star Wars aðdáandi. Honum fannst svo mikið til Svarthöfða koma að hann ákvað að þetta væri eina nafnið fyrir son sinn. Móðir mín var undir áhrifum deyfingar og hefði sennilega samþykkt hvað sem er. Hún samþykkti nafnið en eftir á hugsaði hún: „Hvað höfum við gert?“ Þegar Darth Vader var lítill var honum mikið strítt á nafninu af öðrum krökkum sem voru með honum í skóla auk þess sem kennarar áttu erfitt með að hlæja ekki örlítið í fyrsta skiptið sem þeir hittu hann. Á efri árum hefur nafnið hans að eigin sögn þó frekar komið honum vel heldur en illa og segir hann að kvenfólk veiti honum oftar en ekki mikla athygli vegna nafnsins. Þá hefur hann komist hjá hraðasekt eitt sinn, vegna þess að lögreglumaðurinn sem stöðvaði hann var stórhrifinn af nafninu hans. Ástæða þess að nafn Darth Vader hefur vakið jafn mikla athygli og raun ber vitni má rekja til stuttmyndar sem samstarfsmaður hans bjó til honum til heiðurs og í tilefni af 4. maí, sem má sjá hér að neðan.
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira