Lífið

Svala sló í gegn í gleðskap hjá moldóvska hópnum

Anton Egilsson skrifar
Svala tryllti lýðinn.
Svala tryllti lýðinn. Skjáskot
Svala Björgvinsdóttir tróð í gær upp í gleðskap sem moldóvski Eurovision hópurinn stóð fyrir en þar flutti hún ábreiðu af laginu You've Got The Love. Sló Svala svo sannarlega í gegn með flutningi sínum og uppskar mikið lófaklapp frá viðstöddum.

Svala er nú í fullum undirbúningi fyrir Eurovision keppnina en hún mun koma fram á fyrra undankvöldi keppninnar í Kænugarði næstkomandi þriðjudagskvöld.

Fari hún áfram, sem við vonum svo sannarlega öll, mun hún stíga á stokk að nýju á sjálfu aðalkvöldinu sem fram fer á laugardagskvöld.

Hér að neðan má sjá myndband af Svölu trylla lýðinn í moldóvska gleðskapnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.