Lífið

Viðtalið við Einar á rauða dreglinum í heild sinni: Ofboðslega stoltur af Svölu

Benedikt Bóas og Stefán Árni Pálsson skrifa
Einar Egilsson er mjög bjartsýnn.
Einar Egilsson er mjög bjartsýnn.
„Þetta er búið að ganga alveg gríðarlega vel og ég er ofboðslega stoltur af Svölu og öllu teyminu,“ segir Einar Egilsson, eiginmaður Svölu, á rauða dreglinum fyrir utan Mariyinsky höllina í Kænugarði í dag en Einar virkaði mjög rólegur og bjartsýnn á framhaldið.

Einar er lagahöfundur lagsins Paper ásamt Svölu, en hún kemur fram í dómararennslinu á morgun og stígur síðan á svið á fyrra undanúrslitakvöldinu í höllinni í Kænugarði á þriðjudagskvöldið og þá ræðst hvort að hún komist áfram á lokakvöldið.

„Þetta er rosalega góður hópur og allir eru ofboðslega miklir fagmenn. Við erum ekkert að spá neinu og við ætlum bara að gera okkar besta. Svala er að standa sig gríðarlega vel og ég held að hún eigi eftir að komast langt. Ég hef bara mikla trú á okkur. Við Íslendingar erum svo vinnuglöð og hamingjusöm að vera í þessu,“ segir Einar og bætir við að það sé nokkuð skrítið að vera í Eurovision-landi.

„Það er samt alveg ofboðslega gaman. Þetta er bara eintóm gleði eins og allir segja. Síðan er þetta svo skrítið því þetta eru allskonar tónlistarstefnur settar saman í einn pott.“

Fréttastofa 365 verður með ítarlega umfjöllun frá Eurovision í Kænugarði næstu daga. Fréttamennirnir Stefán Árni Pálsson og Benedikt Bóas Hinriksson verða með umfjöllun hér á Vísi, Stöð 2, Fréttablaðinu og á Bylgjunni á hverjum degi í gegnum alla keppnina. 

Þá verð
ur sérstakur vefþáttur á Vísi alla dagana og hefur sá þáttur fengið nafnið Júrógarðurinn. Hægt verður að fylgjast með ævintýrum Stefáns og Benedikts í Kænugarði á Twitter-reikningi Lífsins og á Snapchat-reikningi 365 sem heitir einfaldlega Snap-365.  

Við minnum líka lesendur á að fylgjast með Facebook-síðu LífsinsFacebook-síðu Vísis og Twitter-reikningi Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.