Bíó og sjónvarp

Geð­heil­brigðis­sam­tök vara við 13 Rea­sons Why

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Ástralska leikkonan Katherine Langford fer með hlutverk unglingsstúlkunnar Hönnuh Baker, aðalpersónu þáttanna 13 Reasons Why.
Ástralska leikkonan Katherine Langford fer með hlutverk unglingsstúlkunnar Hönnuh Baker, aðalpersónu þáttanna 13 Reasons Why. Netflix
Netflix-serían 13 Reasons Why hefur notið mikilla vinsælda síðan hún var frumsýnd þann 31. mars síðastliðinn. Hún hefur þó líka komið af stað umræðu um viðkvæm málefni á borð við þunglyndi, kynferðisofbeldi og sjálfsmorð.

Þáttaröðin er byggð á samnefndri skáldsögu eftir rithöfundinn Jay Asher og er sögð út frá sjónarhorni unglingsstúlku sem fremur sjálfsmorð. Hún tekur svo ástæðurnar að baki þeirri gjörð upp á segulband, sem skólafélagar hennar hlusta á. 

Headspace, áströlsk samtök um geðheilbrigði, hafa varað við þáttaröðinni á grundvelli þess að umfjöllunarefnið sé „hættulegt“ og að fjöldi símtala og tölvupósta til samtakanna hafi aukist verulega. Skeytin séu beintengd þáttunum, þ.á.m. frá áhyggjufullum foreldrum og skólayfirvöldum sem eru uggandi yfir efninu og áhrifum þess á ungt fólk.

Shannon Purser, sem fer með hlutverk Barb í Stranger Things, annarri vinsælli þáttaröð úr smiðju Netflix, tjáði sig um málið á Twitter-aðgangi sínum. Purser hefur sjálf glímt við þunglyndi en hún varar þá sem eru í sjálfsmorðshugleiðingum eða hafa verið beittir kynferðisofbeldi við því að horfa á þættina:

Á framleiðendum hvílir ákveðin ábyrgð

Purser ítrekar þó að margt gott leynist í þáttaröðinni og að hún geti verið einhverjum hjálpleg.

Kristen Douglas, forstöðumaður skólastuðningsdeildar Headspace, tekur undir orð Purser en hamrar öðru fremur á því að umfjöllunin geti leitt til „erfiðra viðbragða hjá áhorfendum.“ Hún sagði einnig mikilvægt að ofureinfalda ekki hugtakið „sjálfsmorð“ með því að gefa í skyn að aðeins eitt vandamál, t.d. það að vera lagður í einelti, geti verið rót vandans.

„Óábyrg umfjöllun um sjálfsmorð getur valdið dauðsföllum í framtíðinni,“ bætti hún við í samtali við áströlsku útgáfu Huffington Post.

Formaður Head Space, Steven Leicester, bætti við að „þeir sem senda út sjónvarpsefni bera ábyrgð á því að þekkja það sem þeir eru að sýna og áhrifin sem ákveðið efni getur haft á áhorfendur, og þá helst unga áhorfendur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.