KA vann Íslandsmeistarana | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. mars 2017 17:14
KA gerði sér lítið fyrir og vann 1-2 sigur á Íslandsmeisturum FH í riðli 1 í Lengjubikar karla í dag. Með sigrinum jafnaði KA FH að stigum en þau eru bæði með sex stig í tveimur efstu sætum riðilsins. Ásgeir Sigurgeirsson kom KA-mönnum yfir á 16. mínútu í Akraneshöllinni í dag. Staðan var 0-1 í hálfleik en í upphafi seinni hálfleiks jafnaði Steve Lennon metin. Skotinn kom inn á sem varamaður í hálfleik og var ekki lengi að láta að sér kveða. Það var svo annar varamaður sem réði úrslitum í leiknum í dag. Á 81. mínútu kom Ólafur Aron Pétursson inn á fyrir Archange Nkrumu og mínútu síðar skoraði hann sigurmark KA. Í uppbótartíma fékk Grétar Snær Gunnarsson, leikmaður FH, sitt annað gula spjald og þar með rautt. Það breytti þó engu um úrslitin. Lokatölur 1-2, KA í vil. Í riðli 2 skildu Fylkir og ÍBV jöfn, 1-1. Daði Ólafsson kom Fylkismönnum yfir með marki úr víti en Jón Ingason jafnaði metin og tryggði Eyjamönnum stig. ÍBV er í 3. sæti riðilsins með fjögur stig en Fylkir í því fjórða með eitt stig.Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá úrslit.net.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“