Stormasamur fyrsti mánuður Donald Trump í embætti forseta Bandaríkjanna atli ísleifsson skrifar 20. febrúar 2017 12:45 Donald Trump er 45. forseti Bandaríkjanna. Vísir/AFP
Mánuður er í dag liðinn frá því að Donald Trump sór embættiseið og tók þar með við embætti forseta Bandaríkjanna af Barack Obama. Óhætt er að segja að mikið hefur gustað um Trump, starfslið hans og embættisverk þessar fyrstu vikurnar. Þessi mál hafa einna helst einkennt fyrsta mánuð valdatíðar þessa 45. forseta Bandaríkjanna:Fyrsta vikanFyrsta verkið í embætti: Ræðst gegn ObamacareEinungis nokkrum tímum eftir að Donald Trump sór embættiseið undirritaði hann tilskipun sem felur í sér að takmarka áhrif og útgjöld Bandaríkjastjórnar vegna sjúkratryggingakerfis Bandaríkjastjórnar sem hefur gengið undir nafninu Obamacare. Sagði Trump þetta fyrsta skrefið í þá átt að afnema kerfið í heild sinni.Hvað mættu margir á innsetningarathöfnina? Ljóst var að mun færri sóttu innsetningarathöfn Donald Trump í Washington DC þann 20. janúar síðastliðinn, borið saman við innsetningarathöfn Obama átta árum fyrr.The crowd size comparison, from 2009 and today. pic.twitter.com/iMYZy9PRK8— Matt Viser (@mviser) January 20, 2017 Ljósmyndir sönnuðu þetta en Trump sjálfur og fjölmiðlafulltrúinn Sean Spicer sökuðu fjölmiðla um að draga úr fjöldanum í umfjöllun sinni og fullyrtu að aldrei höfðu fleiri fylgst með slíkri athöfn. Kellyanne Conway, ráðgjafi Trump, varði fullyrðingar Spicer og sagði hann einungis hafa varpað fram „öðrum mögulegum -staðreyndum“ (e. alternative facts).Árásir á fjölmiðla Fyrstu vikur forsetatíðar Trump hafa annars einkennst mjög af árásum á fjölmiðla, þar sem Trump hefur sakað ákveðna fjölmiðla, meðal annars CNN og MSNBC, um að flytja falsaðar fréttir (e. fake news). Fox virðist vera sú stöð sem einna helst nýtur velvildar Trump af þeim stærstu, en síðustu daga hafa einstakir fréttamenn Fox einnig gagnrýnt Trump fyrir árásir hans á fjölmiðla.Trump ræðst gegn fóstureyðingum Trump undirritaði tilskipun sem kemur í veg fyrir að fjármagn frá alríkisstjórninni þar í landi fari til alþjóðlegra hópa, sem framkvæma eða styðji með einhverjum hætti fóstureyðingar.Trump ræðst gegn fríverslun Trump skrifaði hann undir tilskipun þess efnis að Bandaríkin dragi sig út úr fríverslunarsamstarfi Kyrrahafsríkja (Trans-Pacific Partnership (TPP)). Áður höfðu tólf ríki skrifað undir samninginn, en Obama var hlynntur samningnum. Trump hefur einnig sagt vilja endursemja um NAFTA, fríverslunarsamtarf Norður-Ameríkuríkja.Múrinn á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó Trump greindi frá því að framkvæmdir við byggingu múrs á landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna myndu hefjast við fyrsta tækifæri. Þá sagði hann að hann myndi sjá til þess að Mexíkó myndi borga reikninginn, meðal annars með því að koma á 20 prósenta skatti á innflutning á mexíkóskum vörum til Bandaríkjanna. Enrique Pena Nieto Mexíkóforseti aflýsti fyrirhuguðum fundi sínum með Trump vegna gjörða og orða Trump.Theresa May og Donald Trump.Vísir/AFPMay fyrst erlendra leiðtoga til að heimsækja Trump Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, var fyrst erlendra þjóðarleiðtoga til að heimsækja Trump í Washington. Að fundi loknum lagði May áherslu á að Trump studdi vel við bakið á NATO, þrátt fyrir að hann hafi áður sagt bandalagið vera úrelt.Trump og ferðabannið Trump undirritaði tilskipun um að tímabundið banna komu ríkisborgara frá sjö múslimaríkjum – Írans, Íraks, Líbíu, Sómalíu, Súdan, Sýrlands og Jemen – til Bandaríkjanna, þrátt fyrir að búa yfir gildri vegabréfsáritun. Tilskipun Trump olli mikilli ringulreið á flugvöllum víða um heim. Í kosningabaráttunni hafði Trump sagst vilja banna komu allra múslima til landsins.Önnur vikanFerðabannið gagnrýnt Önnur vika Trump í embætti einkenndist af harðri gagnrýni á ferðabannið. Mikill fjöldi fólks mótmælti á götum og flugvöllum. Dómari í Washington-ríki dæmdi bannið ólöglegt og að það skyldi afnumið. Áfrýjunardómstóll í San Francisco ákvað síðar að lögbannið sem sett var á tilskipuninaskyldi standa. Trump var allt annað en sáttur.SEE YOU IN COURT, THE SECURITY OF OUR NATION IS AT STAKE!— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) February 9, 2017 Varaði við byggingu nýrra landnemabyggðaÞað kom nokkuð á óvart þegar Trump varaði Ísraelsstjórn við byggingu nýrra landtökubyggða. Sagði hann að slíkar byggðist væru ekki til þess fallandi að stuðla að friði.Tilnefnir Gorsuch sem nýjan hæstaréttardómara Trump tilnefndi hinn 49 ára Neil Gorsuch sem nýjan dómara við hæstarétt Bandaríkjanna.Þriðja vikanFundaði með AbeTrump fundaði með Shinzo Abe, forsætisráðherra Japan, í Washington. Leiðtogarnir ræddu aðallega þau mál þar sem ríkin hafa sameiginlegra hagsmuna að gæta en mesta athygli vakti þó vandræðalegt og langt handaband þeirra.Yfirheyrslur öldungadeildarinnar Bandaríkjaþing þarf að staðfesta skipun fjölda þeirra sem forseti tilnefnir til að gegna ákveðnum embættum í stjórn sinni. Hafa viðkomandi mætt yfir þingnefnd til að svara spurningum, en margir þeirra sem Trump tilnefndi eru umdeildir mjög, svo sem dómsmálaráðherrann Jeff Sessions og menntamálaráðherrann Betsy DeVos. Þingið samþykkti skipun DeVos með 51 greiddi atkvæði gegn 50 greiddu en varaforsetinn Mike Pence þurfti þar að greiða úrslitaatkvæðið þar sem jafnt var á munum. Afar fátítt er að varaforsetinn þurfi að greiða atkvæði.Vörulína Ivönku og Nordstrom Trump sakaði verslunakeðjuna Nordstrom um að fara illa með dóttur sína Ivönku Trump, eftir að ákveðið var að hætta sölu á vörulínu hennar í verslunum Nordstrom. Conway þótti feta mjög vafasamar slóðir þegar hún hvatti fólk sérstaklega til að kaupa vörur úr fata- og skartgripalínu Ivönku.My daughter Ivanka has been treated so unfairly by @Nordstrom. She is a great person -- always pushing me to do the right thing! Terrible!— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) February 8, 2017 Flynn og samskiptin við RússlandFréttir eru sagðar af samskiptum þjóðaröryggisráðgjafans Michael Flynn við sendiherra Rússlands, áður en Trump tók við embætti forseta. Málið hefur reynst Trump-stjórninni afar erfitt og leiddi að lokum til afsagnar Flynn, eftir einungis 24 daga í embætti.Fjórða vikanTrump hitter Trudeau Þriðji fundur Trump með leiðtoga erlends ríkis var fundur hans og Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada. Líkt og á fundi Trump og Abe vakti handaband þeirra sérstaka athygli.Vandræði með vinnumálaráðherrannTrump tilnefndi Alexander Acosta í embætti vinnumálaráðherra eftir að Andrew Puzder, sem Trump hafði upphaflega tilnefnt í embættið, dró sig í hlé eftir að hann missti stuðning þingmanna Repúblikana.Einstakur fréttamannafundur Trump réðst harkalega gegn fjölmiðlum á einstökum 75 mínútna fréttamannafundi. Sagði hann fjölmiðla stjórnlausa.
Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Innlent Fleiri fréttir Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Sjá meira