"Veturinn ræður nú ríkjum“ sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 25. febrúar 2017 07:48 Suðvestan hvassviðri með dimmum éljum sunnan- og vestanlands er spáð í dag. vísir/vilhelm
Suðvestan hvassviðri með dimmum éljum sunnan- og vestanlands er spáð í dag en með hægari suðlægum áttum og snjókomu þar með kvöldinu. Búast má við snjókomu á morgun. „Veturinn ræður nú ríkjum, eins og vænta má af almanakinu. Í dag gengur á með allhvössum útsynningi og éljum sunnan- og vestanlands. Vindar verða þó hægari á Norður- og Austurlandi og léttir smám saman til þar. Í kvöld kemur smálægð upp að suðurströndinni og fer þá að að snjóa sunnan og vestan til,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings sem birtar eru á vef Veðurstofunnar. „Á morgun leggst hann í ákveðna austanátt og snjóar þá víða, en lægir smám saman og rofar til á Suður- og Vesturlandi. Eftir helgi er síðan spáð norðanáttum með tilheyrandi ofankomu fyrir norðan og austan og kólnandi veðri. Á Suður- og Vesturlandi verður þó víða bjartviðri, en vetrarlegt um að litast.“ Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag: Austan 8-15 m/s og slydda eða snjókoma N og A-lands fram eftir degi, en dregur síðan talsvert úr vindi og rofar til. Austan 5-10 og stöku él S- og V-til. Kólnandi veður og frost 0 til 8 stig um kvöldið, minnst við sjávarsíðuna. Á mánudag: Gengur í norðaustan 13-20 m/s, hvassast austast. Snjókoma eða él N-til, en slydda austast, en annars þurrt að kalla. Minnkandi úrkoma um kvöldið. Hiti í kringum frostmark. Á þriðjudag: Norðankaldi og él austast, en annars hægari og víða bjart. Kólnandi veður. Á miðvikudag, fimmtudag og föstudag: Norðaustlæg átt og víða dálítil él, en bjartviðri SV-lands. Víða talsvert frost.
Veður Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Sjá meira