Valsmenn bundu enda á sigurgöngu Hattar á heimavelli Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. febrúar 2017 21:47 Austin Magnús Bracey skoraði 15 stig. vísir/anton
Valsmenn gerðu góða ferð til Egilsstaða og lögðu Hött að velli, 68-76, í 1. deild karla í körfubolta í kvöld. Þetta var aðeins annað tap Hattarmanna í vetur en fyrir leikinn í kvöld voru þeir búnir að vinna átta heimaleiki í röð. Höttur er áfram á toppi deildarinnar með 34 stig. Fjölnir er í 2. sæti með 30 stig og Valur í því þriðja með 28 stig. Valsmenn eiga tvo leiki til góða á Hattarmenn og Fjölnismenn. Stjörnuleikur Aarons Moss dugði Hetti ekki til sigurs. Moss skoraði 32 stig, tók 20 fráköst, gaf sjö stoðsendingar og stal boltanum sjö sinnum. Urald King var atkvæðamestur í jöfnu liði Vals. Hann skoraði 16 stig og tók 14 fráköst. Sigurður Dagur Sturluson og Austin Magnús Bracey komu næstir með 15 stig hvor. Valsmenn voru nálægt því að komast í bikarúrslit í síðustu viku en þeir töpuðu naumlega fyrir KR í undanúrslitunum. Strákarnir hans Ágústs Björgvinssonar líta því nokkuð vel út fyrir lokasprettinn á tímabilinu.Höttur-Valur 68-76 (16-11, 15-20, 18-23, 19-22)Höttur: Aaron Moss 32/20 fráköst/7 stoðsendingar/7 stolnir, Mirko Stefan Virijevic 14/10 fráköst/3 varin skot, Ragnar Gerald Albertsson 8, Hreinn Gunnar Birgisson 7/5 fráköst, Vidar Orn Hafsteinsson 6, Sigmar Hákonarson 1/8 fráköst.Valur: Urald King 16/14 fráköst/3 varin skot, Austin Magnus Bracey 15, Sigurður Dagur Sturluson 15/4 fráköst, Oddur Birnir Pétursson 11, Benedikt Blöndal 9/5 fráköst, Illugi Auðunsson 5/6 fráköst, Sigurður Páll Stefánsson 3, Birgir Björn Pétursson 2/10 fráköst.
Dominos-deild karla Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Fleiri fréttir Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Sjá meira