Benedikt Guðmunds: Danero Thomas hefur yfirgefið leikmannahópinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. janúar 2017 17:00 Danero Thomas. Vísir/Ernir
Danero Thomas verður ekki með Þórsliðinu í kvöld þegar liðið heimsækir Skallagrím í nýliðaslag í Fjósinu í Borgarnes. Leikur Skallagríms og Þórs hefst klukkan 20.00 í kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Strax á eftir leiknum verður síðan Körfuboltakvöld með Kjartani Atla og félögum. Danero Thomas hefur verið í stóru hlutverki hjá nýliðum Þórs í vetur en aðeins Darrel Keith Lewis hefur skorað fleiri stig en hann. Danero Thomas var óvænt ekki í leikmannahópi Þórs í bikarleik á móti Grindavík og þjálfarinn Benedikt Guðmundsson staðfestir það við heimasíðu Þórs að leikmaðurinn sé farinn frá félaginu. „Varðandi hópinn okkar þá hefur Danero Thomas yfirgefið leikmannahópinn síðan síðasta deildarleik. Þá lenti Þröstur Leó í smá vinnuslysi í vikunni og hefur ekkert æft og við munum meta stöðuna á honum bara rétt fyrir leik. Sindri Davíðs er einnig tæpur að þessu sinni en ef ég þekki hann rétt þá lætur hann á meiðslin reyna í fjósinu“ segir Benedikt Guðmundsson í samtali við thorsport.is. Danero Thomas er með 16,6 stig, 7,1 frákast og 3,1 stoðsendingu að meðaltali á 30,2 mínútum í leik með Þór í Domino´s deild karla. Hann var í byrjunarliðinu í öllum þrettán leikjunum sem hann spilaði. Danero Thomas hefur nú spilað með fimm félögum á Íslandi síðan að hann kom fyrst til KR tímabilið 2012-13. Hann var með Hamar tímabilið 2013-14, lék með bæði Val og Fjölni 2014-15 en var nú á sínu öðru tímabili með Þór Akureyri. Það má búast við því að Danero Thomas verði búinn að finna sér sitt sjötta félag hér á landi áður en félagsskiptaglugginn lokar á ný. Hvert það verður kemur seinna í ljós.
Dominos-deild karla Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira