Ísland hefur ekki byrjað verr á HM í handbolta síðan 1978 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2017 11:30 Túnisbúinn Oussama Boughanmi var ekki sáttur með Björgvin Pál Gústavsson, markvörð Íslands. Vísir/EPA
Íslenska handboltalandsliðið hefur ekki byrjað verr á stórmóti í þrettán ár en liðið er enn án sigurs á HM í handbolta í Frakklandi eftir þrjá leiki. Það þarf að fara aftur til ársins 2004 til að finna stórmót þar sem íslenska liðið náði síðast ekki að fagna sigri í fyrstu þremur leikjum sínum. Ísland hefur heldur ekki byrjað verr á heimsmeistaramótið síðan á heimsmeistaramótinu í Danmörku fyrir 39 árum síðan. Íslenska landsliðið komst ekki upp úr riðlinum á EM í Slóveníu 2004. Liðið fékk þá bara eitt stig í þremur leikjum eftir tap á móti Slóveníu í fyrsta leik og Ungverjalandi í öðrum leik en liðið gerði síðan jafntefli við' Tékka í lokaleiknum. Íslenska landsliðið náði í sitt fyrsta stig á móti Túnis í gær en aðeins þrisvar sinnum hafa strákarnir okkar farið stigalausir í gegnum fyrstu þrjá leiki sína síðast á EM í Króatíu árið 2000. Ísland fékk heldur ekki stig í þremur leikjum sínum á HNM 1974 og á HM 1978. Ísland spilaði ekki fleiri leiki á HM 1974, HM 1978 eða á HM 2004 en á Evrópumótinu í Króatíu fyrir sautján árum tapaði liðið fyrstu fimm leikjum sínum og vann ekki leik fyrr en á móti Úkraínu í leiknum um ellefta sætið. Guðmundur Guðmundsson var á sínu þriðja stórmóti með íslenska landsliðið á EM í Slóveníu 2004 og Þorbjörn Jensson var á sínu öðru stórmóti með íslenska landsliðið á EM í Króatíu 2000. Þetta er því versta byrjun þjálfara með íslenska landsliðið á sínu fyrsta stórmóti á þessari öld en Geir Sveinsson er nú í fyrsta sinn með strákana okkar á stórmóti.Fæstir sigurleikir Íslands í fyrstu þremur leikjum sínum á stórmóti í handbolta: 0 - HM 1974 í Austur-Þýskalandi 0 - HM 1978 í Danmörku 0 - EM 2000 í Króatíu 0 - EM 2004 í Slóveníu 0 - HM 2017 í FrakklandiFæst stig Íslands í fyrstu þremur leikjum sínum á stórmóti í handbolta: 0 - HM 1974 í Austur-Þýskalandi 0 - HM 1978 í Danmörku 0 - EM 2000 í Króatíu 1 - EM 2004 í Slóveníu 1 - HM 2017 í Frakklandi
Handbolti HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Bakgarður í rigningu og roki: „Stjórna ekki veðrinu en get búið mig undir það“ Sport „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Fleiri fréttir Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Sjá meira