Kólnar snögglega þegar líður á morguninn Atli ísleifsson skrifar 5. janúar 2017 08:46 Um helgina og fram í næstu viku er spáð mjög órólegu veðri. vísir/eyþór
Snögglega mun kólna þegar líður á morguninn sunnan og vestanlands og mun hitinn vera við frostmark. Helga Ívarsdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofunni, segir að nú sé sunnan hvassviðri eða stormur á landinu og talsvert mikil rigning sunnan og vestanlands en úrkomuminna fyrir norðan. „Skilin eru nú yfir Reykjavík en eru þau á hraðri siglingu austur af og í kjölfarið kólnar snögglega með suðvestan hvassviðri eða stormi og éljagangi. Klukkan átta var um átta gráður í Reykjavík, en nú er byrjað að kólna hér vestast og vindurinn er byrjaður að snúast. Hitinn verður í kringum frostmark.“ Helga segir að það verði umhleypingar áfram og að næsti stormur sé væntanlegur á sunnudagskvöld. „Í næstu viku er útlit fyrir að verði heldur kaldara þannig að það verði meira um snjókomu. Það verða sviptingar í veðrinu alla vikuna.“ Um helgina og fram í næstu viku er spáð mjög órólegu veðri og ferðalangar eru því hvattir til að kynna sér vel veðurspá og færð áður en lagt er í hann.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ laugardag: Suðlæg átt, 10-15 m/s, rigning eða slydda og hiti 0 til 5 stig. Snýst í suðvestan 10-18 með éljum og kólnar vestantil á landinu fyrir hádegi, en austantil síðdegis. Hægari vindur og úrkomulítið NA-til.Á sunnudag: Vaxandi suðaustan átt, dálítil él og hlýnar, stormur um kvöldið og talsverð slydda eða rigning, en heldur hægari og úrkomulítið norðaustantil.Á mánudag: Norðaustanstormur með snjókomu NV-til fram eftir degi, en annars hægari vindur og úrkomuminna. Norðan 13-20 um kvöldið og snjókoma eða él um landið norðanvert, en léttir til sunnanlands. Frost 0 til 6 stig, en sums staðar frostlaust úti við sjóinn.Á þriðjudag og miðvikudag: Búast má við áframhaldandi lægðagangi með slyddu eða snjókomu í flestum landshlutum.
Veður Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fleiri fréttir Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Sjá meira