Nýársspá Siggu Kling – Hrúturinn: Þetta verður eins og jarðskjálfti sem er 10 á Richter 6. janúar 2017 09:00
Elsku besti Hrúturinn minn. Þetta verður ár bjartsýni og hugrekkis. Þetta ár verður miklu skemmtilegra heldur en árið sem var að líða. Þú ert einhvern veginn orðinn svo miklu sterkari og jákvæðari og munt bara yppa öxlum þótt einhver leggi stein í götu þína. Við getum sagt að síðasta ár hafi skotið styrkum stoðum undir þetta ár, það skiptir að sjálfsögðu mjög miklu máli. Það er töluvert búið að vera af uppgjörum, búið að klára mörg mál og þú ert miklu ákveðnari núna heldur en þú hefur verið. Þú átt meira að segja eftir að gefa þér tíma til að hvíla þig og njóta lífsins þó að það verði að sjálfsögðu mikið að gera hjá þér. Það verður allt bara einhvern veginn svo miklu meira spennandi sem verður að gerast. Margar ákvarðanir verða teknar áður en júní kemur. Það gæti verið boð um nýja búsetu, það eru góðar tengingar erlendis og allt er eitthvað svo kraftmikið – þetta verður eins og jarðskjálfti sem er 10 á Richter. Þetta er ástríðufullt ár, allavega helmingurinn af því, og þeim Hrútum sem eru á lausu verður boðið upp í dans og í ævintýri en 2018 er árið sem á eftir að festa þig í framtíðartengslum ef þú ert á lausu, elskan mín. Þetta ár á eftir að líða á eldingarhraða. Að sjálfsögðu flækjast alltaf einhverjar áhyggjur í kringum eitt ár. En þegar ég skoða þetta, þá eru það áhyggjur af öðru fólki en ekki af þinni eigin stöðu og þú getur misst kraft þinn og mátt út af öðrum. Þetta er árið sem þú ferð til þess að laga orkuna þína og þar sem þú átt eftir að læra margt um andlega hluti og þú munt líka finna sjálfan þig og verða sáttur. Þú þarft að standa með sjálfum þér í upphafi ársins fjárhagslega en ekki hafa of miklar áhyggjur. Það gætu verið einhvers konar svik í kringum þetta tímabil. Þetta getur líka verið í öllu mögulegu. Vertu bara varkár í upphafi ársins, þú átt eftir að finna á þér hvað ég er að tala um og ég er alveg handviss um að þetta er eitthvað sem þú getur leiðrétt. Það er svo margt ótrúlegt sem á eftir að koma upp hjá þér á þessu spennandi ári sem framundan er. Það er eins og þú flækist í alls konar net af uppákomum sem leiða þig í nýjar áttir. Segðu bara já ef þú ert beðinn um eitthvað (með varkárni þó í upphafi ársins) sem þú myndir venjulega ekki gera, því það mun leiða þig inn í spennandi aðstæður sem gerir lífsárið þitt svo dásamlegt. Knús og klapp, Sigga KlingFrægir Hrútar: Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona, Silvía Lovetank listamaður, Marta María Jónasdóttir á Smartlandi, Björgvin Halldórsson söngvari, Kári Stefánsson vísindamaður, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, Hugh Hefner, Birgitta Jónsdóttir pírati, Anna Svava Knútsdóttir leikkona, Ólöf Erla, grafískur hönnunarsnillingur, Elton John söngvari, Salka Sól súperdrottning, Þóra í Atlanta, Sigmar Guðmundsson sjónvarpsmaður, Berglind Pétursdóttir, Steinunn Jónsdóttir, söngkona AmabAdamA, Þórhallur Þórhallsson uppistandari, Kristín Þorsteinsdóttir, aðalritstjóri 365 miðla, Alda í Handy pandy, naglalistakona, Vala Grand, Hjálmar Forni listamaður.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Lífið Dorrit á trampólíni Lífið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Lífið Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Lífið Tuttugu gellur á einu kvöldi Lífið Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Lífið Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Bíó og sjónvarp Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Sjá meira