Útlit fyrir stórhríð á vegum á Austurlandi sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 23. desember 2016 07:51
Útlit er fyrir stórhríð á fjallvegum á Austurlandi og síðar einnig á Norðurlandi austan Eyjafjarðar í dag. Færð getur hæglega spillst á Austur- og Norðausturlandi í dag, að því er segir á vef Veðurstofunnar. Gert er ráð fyrir vaxandi norðanátt og snjókomu, hvassviðri Austanlands en stormi eða roki suðaustantil í dag. Talsvert hægari vindur og él á vestanverðu landinu. Frost núll til átta stig en hlánar við suðaustur- og austurströndina. Lægir á morgun en snjóar áfram á Norðurlandi. Hvessir aftur af norðri með slyddu eða snjókomu á jóladag en rigningu Austanlands. Vindur snýst síðan líklega í sunnanátt og hlýnar í veðri en búist er við asahláku á þriðjudag með mikilli rigningu á Suður- og Vesturlandi. Í athugasemdum veðurfræðings á vefsíðu Veðurstofunnar segir að í byggð á Austfjörðum fari úrkoma yfir í slyddu, en yfir fjallvegina megi ætla að skyggni verði afar lítið í mikilli snjókomu og skafrenningi. Búist sé við allt að 23 metrum á sekúndu um landið austanvert og að sunnan undir Vatnajökli, frá Lómagnúpi og austur á Berufjörð verði hviður 35 til 45 metrar á sekúndu frá hádegi og fram á kvöld. Laugardagur (aðfangadagur jóla): Norðan og norðvestan 13-18 m/s. Snjókoma eða él, einkum N-til á landinu. Lægir smám saman og dregur úr úrkomu. Hiti um eða undir frostmarki. Sunnudagur (jóladagur): Hvöss norðanátt. Úrkomulítið S-lands, annars snjókoma en rigning eða slydda við A-ströndina. Hiti breytist lítið. Mánudagur (annar í jólum): Suðlæg átt og víða él, en snjókoma fram eftir degi NA-lands. Frost 0 til 8 stig. Slydda eða snjókoma á S- og V-landi um kvöldið.
Veður Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira