Forsætisráðherra Ástralíu vill að landið verði lýðveldi eftir daga Elísabetar Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 18. desember 2016 11:23 Malcolm Turnbull. Vísir/EPA
Malcom Turnbull, forsætisráðherra Ástralíu hélt ræðu á fundi ástralskra lýðveldissinna nú um helgina þar sem hann tjáði þá skoðun sína að Ástralía ætti að verða að lýðveldi eftir daga Elísabetar Englandsdrottningar. Guardian greinir frá.Ástralía hefur frá því að landið fékk fullveldi verið með þingbundna konungsstjórn og er Elísabet þjóðhöfðingi ríkisins. Turnbull fór sjálfur fyrir hreyfingu lýðveldissinna árið 1999 þegar Ástralir héldu þjóðaratkvæðagreiðslu um stofnun lýðveldis, en meirihluti þjóðarinnar kaus gegn því. Tillaga lýðveldissinna þá var sú að þjóðhöfðingi landsins yrði forseti sem kosinn yrði af þinginu. Sagði Turnbull um helgina að hann teldi það hafa verið mistök. Margir Ástralir hefðu verið áhyggjufullir um að stjórnmálamenn landsins hefðu þá of mikil völd á kostnað fólksins. Lagði hann því til að haldin yrði ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem Ástralir myndu kjósa um það hvernig forseti landsins yrði valinn. Turnbull lagði þó áherslu á að hann teldi að Ástralir ættu ekki að huga að stofnun lýðveldis á meðan Elísabet væri drottning vegna þeirrar gífurlegu virðingar sem þjóðin bæri fyrir henni. Ástralir myndu einfaldlega ekki styðja stofnun lýðveldis og að slíta tengslin við breska konungsveldið á meðan hún væri enn á lífi.
Kóngafólk Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira