Skrifað um kvikmyndabrosið hans Hauks í frönskum fjölmiðlum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. desember 2016 16:00 Haukur Helgi Pálsson fagnar sigri í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Bára
Haukur Helgi Pálsson fær mikið hrós fyrir frammistöðu sína með Rouen í síðustu umferð frönsku b-deildarinnar. Stuðningsmenn Rouen hafa þurft aðeins að bíða eftir því að Haukur Helgi sýni sitt allra besta enda hefur strákurinn verið óheppinn með meiðsli í byrjun tímabilsins. Haukur Helgi var hinsvegar í ham um helgina þegar hann hjálpaði Rouen að vinna tíu stiga sigur á Bourg-en-Bresse 80-70. Þetta voru afar nauðsynleg stig fyrir Rouen sem er enn í neðsta sæti deildarinnar. Blaðamaður staðarblaðsins Paris-Normandie hefur grein sína á því að tala um „Stóra ljóshærða strákurinn á bláu skónum“ en þar segir að Haukur sé loksins laus við meiðslin. Blaðamaðurinn heldur áfram ljóðrænni lýsingu sinni á Hauki og hrósar honum ekki aðeins fyrir frammistöðuna inn á vellinum heldur einnig fyrir bíóbrosið sitt. „Hann kemur með ró inn í liðið,“ segir þjálfarinn Rémy Valin. „Hann er yfirvegaður og kemur með sjálfstraust inn í liðið,“ bætti hann við. Haukur Helgi hafði verið að glíma við meiðsli á mjöðm í sex vikur en að þessu sinni héldu honum engin bönd. Haukur endaði leikinn með 20 stig, 4 fráköst og 3 stoðsendingar en hann hitti meðal annars úr 6 af 7 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Haukur Helgi var með framlag upp á 23 stig sem er mjög gott. Það er hægt að lesa umfjöllunina um Íslendinginn með kvikmyndabrosið með því að smella hér. Haukur Helgi verður aftur í sviðljósinu í kvöld þegar Rouen mætir Fos-sur-Mer.
EM 2017 í Finnlandi Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Haaland kyndir undir Haaland-æði á samfélagsmiðlum Fótbolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn Fleiri fréttir Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sjá meira