AC Milan komið í annað sætið | Juventus með fimm stiga forskot Kristinn Páll Teitsson skrifar 6. nóvember 2016 15:50 Suso skoraði eitt og lagði upp annað í sigri AC Milan. Vísir/EPA
AC Milan er komið upp í annað sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 sigur á Palermo á útivelli í dag en fimm stig skilur liðið að frá toppliði Juventus sem var sömuleiðis á sigurbraut í dag. Mílanó-menn hafa verið á miklu skriði síðustu vikurnar en liðið hefur nú unnið sex af síðustu átta leikjum og fengið 19 stig í þessum átta leikjum. Spænski miðjumaðurinn Suso kom AC Milan yfir á 15. mínútu en hann lagði upp sigurmarkið fyrir Gianluca Lapadula eftir að Palermo jafnaði metin á 71. mínútu. Ítölsku meistararnir í Juventus unnu sömuleiðis sinn leik á útivelli 2-1 gegn Chievo en Miralem Pjanic skoraði sigurmarkið korteri fyrir leikslok. Sergio Pellissier jafnaði metin af vítapunktinum fyrir Chievo í 600. leik Gianluigi Buffon í ítölsku deildinni eftir að Mario Mandzukic kom Juventus yfir. Udinese náði stigi á útivelli gegn Genoa 1-1 eftir að hafa komist yfir snemma leiks en Emil Hallfreðsson var ekki með liðinu í dag vegna meiðsla.Úrslit dagsins: Pescara 0-4 Empoli Chievo 1-2 Juventus Genoa 1-1 Udinese Palermo 1-2 AC Milan Sassuolo 0-3 Atalanta
Ítalski boltinn Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Fótbolti Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Sóley Margrét heimsmeistari Sport Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Aron Einar miðvörður í Niksic Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Fótbolti Fleiri fréttir Risasigur hjá Þjóðverjum og stórstjörnurnar skoruðu fyrir Svía Cecelía Rán hélt hreinu í góðum sigri Markalaust jafntefli tryggði Íslandi úrslitaleik á þriðjudag „Við munum þurfa að finna út úr því vandamáli á morgun“ Ísak Bergmann fær hrós á X: „Åge svelt hann með landsliðinu“ „Spila oftast best þegar ég er reiður“ „Örugglega hræðilegt að horfa á þetta“ „Við vissum að þetta yrði smá hark“ Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Aron Einar meiddur af velli eftir tuttugu mínútur Aron Einar miðvörður í Niksic Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Sveindís og stöllur með fimm stiga forskot á toppnum Sædís skoraði annan deildarleikinn í röð Sjálfsmark skildi að og strákarnir komnir á næsta stig Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Sárafáir Íslendingar á meðal 4.000 áhorfenda á leik dagsins „Þeir hafa bætt sig frá því síðast en við einnig“ „Menn verða betri með hverju verkefninu sýnist mér“ Hafa lagt extra mikið í greiningu á ákveðnum þætti í leik Íslands Scott McTominay sér ekki eftir neinu Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Sjá meira