Litríku dragtirnar hennar Hillary Clinton Ritstjórn skrifar 7. nóvember 2016 14:30 Hillary Clinton kann að velja sér dragtir. Myndir/Getty
Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum munu fara fram á morgun eftir ansi skrautlegt ár sem hefur einkennst af einni hörðustu baráttu frambjóðenda sem að fólk man eftir. Hillary Clinton fer á móti Donald Trump og á morgun mun ráðast hvers konar áherslur Bandaríkin munu beita sér fyrir næstu árin. Það eru ekki aðeins vitleysan sem hefur borið af í þessari kosningabaráttu, heldur einnig hinar fjölbreyttu dragtir hennar Hillary Clinton. Við hvert tilefnið að fætur öðru klæðist hún nýrri og nýrri dragt. Hún er greinilega ekki hrædd við að prófa að vera í litum og hvað þá frá toppi til táar. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar af hennar bestu drögtum. Nú er bara að bíða og vona að okkar kona beri sigur af hólmi og bjargi Bandaríkjunum frá skaðræðinu sem Trump er. Hillary klæddist rauðu á fyrstu kappræðunum.Mynd/GettyÁ öðrum kappræðunum var hún í klassískri dökkblárri dragt með hvítum kraga.Á þriðju kappræðunum fór okkar kona í allt hvítt og gjörsamlega átti sviðið.Hvítur jakki við svartar buxur getur ekki klikkað.Hún klæddist kóngablárri dragt á kosningaskrifstofu sinni á dögunum sem fór henni einstaklega vel.Clinton kann að breyta til og skipta um snið. Síður dökkblár jakki við hvíta síða blússu kemur vel út.Hillary lifði af rigninguna í þessari ljósgrænu dragt.Sægrænn jakki við svartar buxur sýnir að Clinton er óhrædd við áhættur.
Donald Trump Mest lesið Stjörnurnar skína skært í Cannes Glamour Sænski prinsinn genginn út Glamour Götutískan á Secret Solstice Glamour Beint af tískupallinum í sölu Glamour Bloggarar fögnuðu nýju ári með nýju útliti Glamour Heimsleikarnir í sjálfstrausti: Þú á móti þér Glamour Britney Spears söngleikur í vinnslu Glamour Topshop hefur sölu á brúðarkjólum Glamour SKAM-stjarna í herferð H&M x Erdem Glamour Klæða af sér kuldann með litum og munstrum Glamour