Burton komið til Íslands 21. október 2016 14:00 DéBé bretti og stíll ehf. rekur vefverslunina debe.is og er fjölskyldufyrirtæki í eigu þeirra Björgvins Hólm Birgissonar, Dagnýjar Bjarkar Reynisdóttur, Reynis Birgissonar og Birgis Arnar Tómassonar.
DEBE.IS KYNNIR Á debe.is er mikið úrval af vönduðum snjóbrettavörum og fatnaði frá snjóbrettaframleiðandanum Burton. Auk þess býður verslunin upp á fallegan jógafatnað og dýnur frá ýmsum framleiðendum. Debe.is leggur metnað sinni í að vera samkeppnishæft við erlendar vefverslanir með sambærilega vöru. DéBé bretti og stíll ehf. rekur vefverslunina debe.is. Þetta er fjölskyldufyrirtæki sem hóf starfsemi sína í desember í fyrra. Fyrirtækið er með umboð fyrir Burton hér á landi, en Burton býður upp á snjóbretti og allan útbúnað sem þeim tengist. Auk þess framleiðir Burton gríðarlega breitt úrval af fatnaði, allt frá sokkum upp í virkilega vandaðan og fallegan útivistarfatnað. Fyrirtækið á rætur sínar að rekja til snjóbrettaáhuga fjölskyldu einnar á Reyðarfirði. „Við hjónin og synir okkar erum mikið á snjóbrettum og höfum tengst brettafélaginu hér fyrir austan,“ segir Dagný Björk Reynisdóttir, eigandi debe.is. „Í upphafi kom þessi hugmynd um að skoða umboð frá sonum okkar. Burton-vörurnar höfðu ekki verið aðgengilegar hér á landi í mörg ár, þrátt fyrir að vera eftirsóttar og vandaðar vörur. Við sendum því fyrirspurn til þeirra upp á von og óvon, og við fengum mjög jákvæð viðbrögð frá þeim. Því var þetta spurning um að hrökkva eða stökkva.“Debe.is er með fallegan og vandaðan jógafatnað frá Teeki, Onzie og The Choclo Project og frábærar jógadýnur frá JadeYoga úr hrágúmmíi.Stór sending á leiðinni Von er á fyrstu stóru vetrarsendingunni frá Burton í lok október. „Þessa dagana erum við í óðaönn að setja nýju vörurnar inn á heimasíðuna. Þetta eru meðal annars snjóbretti, skór og bindingar, vetrarfatnaður, snjóbuxur, úlpur og jakkar fyrir alla fjölskylduna. Fatalínan þeirra er gríðarlega flott og vönduð. Auk vetrar- og útivistarfatnaðar, er mikið úrval af almennum fatnaði,“ lýsir Dagný og tekur fram að fatnaðurinn henti í hvaða útivist sem er. Dagný segir snjóbrettaíþróttina vera að breytast, iðkendahópurinn er orðinn breiðari en var á árum áður. „Það er mikið barnastarf í gangi í íþróttinni og iðkendum er að fjölga. Fólk er líka að verða meðvitaðra um öryggismál sem er mjög góð þróun og bjóðum við upp á flotta og vandaða hjálma og gleraugu frá Anon. Einnig erum við með brynjur frá Dainese sem henta jafnt skíða- og brettafólki. Allar þessar vörur uppfylla gildandi öryggisstaðla,“ segir Dagný.Vandaðar jógavörur Í netversluninni má líka fá jóga- og íþróttafatnað á konur og karla, frá flottum og vönduðum merkjum. „Okkur langaði að vera með fjölbreytt vöruúrval. Við erum með fallegan og vandaðan jógafatnað frá Teeki, Onzie og The Choclo Project og svo frábærar jógadýnur frá JadeYoga úr hrágúmmíi. Við leggjum áherslu á að framleiðendur þeirra vara sem við seljum hafi umhverfisvernd og samfélagsábyrgð að leiðarljósi við framleiðsluna.“ Hægt er að skoða úrvalið og fá nánari upplýsingar á debe.is og á Facebook undir DéBé Bretti og stíll og DéBé Jóga, einnig á Instagram.Fatalínan frá Burton er gríðarlega flott og vönduð. Auk vetrar- og útivistarfatnaðar er mikið úrval af almennum fatnaði.
Mest lesið Helgi Björns tryllti lýðinn á 40 ára afmæli Gagnrýni Stjörnulífið: Sjóðheitar stjörnur í fimbulkulda Lífið Ferðast umhverfis jörðina á 38 dögum Lífið Ísak og Karítas orðin foreldrar eftir bráðakeisara Lífið Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga með nýja sketsaseríu um jólin Bíó og sjónvarp Adele kveður sviðið um óákveðinn tíma Lífið Frambjóðendur stigu trylltan dans með unga fólkinu Lífið Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? Lífið Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið Hvað eru konur í framboði að hlusta á? Lífið Fleiri fréttir Smáralindin fylltist af bókþyrstum gestum Bókaumfjöllun: Einlæg og íhugul skáldævisaga Höfundar lesa upp úr bókum sínum í beinni í kvöld Bókadómur: Þörf bók um missi Frábært gjafakort sem gleymist ekki ofan í skúffu Skautadiskó til styrktar góðu málefni Vestfjarðaglæpasaga sem kemur á óvart Bókakonfekt Forlagsins: Níu höfundar lesa upp í kvöld Ritdómur: Naskar mannlýsingar í misjöfnu verki Troðfull Smáralind af krökkum að fylgjast með Birgittu Bókaumfjöllun: Að hverfa í tómið Bókaumfjöllun: Kjarkmiklar og áræðnar konur Rauðvínsgljáður sviðakjammi og mysuglassúr á kleinu Höfundar lesa upp í beinni Upplifun og dýrmætar minningar í jólagjöf Bókaumfjöllun: Netflix áhrif í ljúfri jólaástarsögu Bókaumfjöllun: „Allt sem rafmagnið huldi“ Magnesíum kemur í mörgum mismunandi formum Jólaboð sem gleður og yljar á aðventunni Pantaðu sól og gleði með Úrval Útsýn Ritdómur: Gáskafull þeysireið Friðsemdar Ostaboxið frá EasyCheese hefur slegið í gegn Nýr og glæsilegur uppskriftavefur frá Nóa Síríus Ritdómur: Glæpasaga hlaðin leyndarmálum og rómans Ritdómur: Ekkert eins ljúffengt og minningin Þriggja daga veisla með Skálmöld í Hörpu Hrá upplifun í einstakri náttúruperlu Hlúa að heilsunni í infrarauðum hita í skammdeginu Óléttan breytir viðhorfum til innihaldsefna Allt í búðinni í boði - gjafabréf frá Maí stórsniðug jólagjöf Sjá meira