Verkefnið ber nafnið Rambo: New Blood og verður henni leikstýrt af Ariel Vromen.
Samkvæmt heimildum Hollywood Reporter verður hinn nýi Rambo líkari ofurnjósnaranum breska James Bond, en eins manns hernum John Rambo úr gömlu myndunum. Frekari upplýsingar um söguþráð myndarinnar liggja ekki fyrir.
Rambo: First Blood kom út árið 1982 og skartaði Silvester Stallone í aðalhlutverki þar sem hann lék John Rambo. Sá var nýkominn heim til Bandaríkjanna eftir Víetnamstríðið og komst upp á kant við lögin í smábæ í Bandaríkjunum.
Rambo: First Blood Part II kom út árið 1985. Þar náði John Rambo fram hefndum gegn fyrrum óvinum sínum í Víetnam og Rússum. Fyrri myndin fjallaði að miklu leyti um vandræði fyrrum hermanna í Víetnam þegar þeir sneru aftur heim en sú síðari var hasarmynd í gegn. First Blood Part II sló í gegn í kvikmyndahúsum og gerði Rambo að heimsþekktum karakter.
Rambo III, sem kom út árið 1988 gekk ekki jafn vel meðal áhorfenda. Rambo var í dvala í tuttugu ár eða þangað til Sylvester Stallone endurvakti hann árið 2008 með myndinni Rambo.