Glaðar eftir fund með borgarstjóra Stefán Árni Pálsson skrifar 16. október 2016 13:00 Jón Gnarr er borgarstjórinn á ný. vísir
Starf borgarstjóra Reykjavíkur felst að miklu leiti í því að taka á móti gestum í ráðhúsinu. Til hans leitar fjöld fólks með ýmis vandamál eða skemmtilegar hugmyndir. Borgarstjóri reynir eftir fremsta megni að hjálpa fólki og sér það sem skyldu sína að leiða fólk í gegnum ranghala stjórnkerfisins. Borgarstjóra er sérstaklega annt um aldraða og öryrkja. Enginn borgarstjóri í Reykjavík hefur átt jafn marga fundi með fulltrúum þessara hópa eins og Lúðvík Einarsson. Á hverjum degi hittir hann fulltrúa grasrótarsamtaka og minnihlutahópa í Reykjavík til að fylgjast með daglegu lífi og halda lifandi talsambandi við íbúana. Reglulega snæðir hann hádegisverð í einhverjum af þeim fjölda þjónustukjarna sem borgin rekur, til að hitta fólk í þeirra eigin umhverfi. Hann borðar sama mat og öryrkjar og aldraðir til að tryggja það að hann sé alltaf næringarríkur og góður. Því aldraðir og öryrkjar eiga bara hið besta skilið. Hann á það líka til að birtast snemma morguns og borða morgunmat með krökkum á leikskóla. Það eru undantekningarlaust miklar gleðistundir. Auðvitað finnst börnunum og starfsfólkinu mikill heiður og upphefð að fá sjálfan borgarstjórann í Reykjavík í heimsókn en enginn hefur jafn gaman af þessu en borgarstjórinn sjálfur. Hann nýtur þess að sitja með krökkunum og spjalla við þau og segja þeim sögur frá því hann var sjálfur barn. Og eins og hann hefur sagt svo margoft sjálfur: „Börnin hafa mikið að kenna okkur. Fyrir utan aldraða og öryrkja þá eru þau líklega sá þjóðfélagshópur sem hefur mesta visku að miðla til okkar hinna.“ Á dögunum hitti hann fulltrúa félags kvenna af erlendum uppruna en þær hafa verið að glíma við húsnæðisskort. Alls staðar höfðu þær komið að lokuðum dyrum og svo að það ógnaði starfsemi félagsins. Svona lagað viljum við ekki sjá í borginni okkar. Borgarstjóri byrjaði á því að þakka konunum fyrir að koma til fundar við sig og hrósa þeim fyrir góða íslenskukunnáttu. Hann fullvissaði þær um að hann mundi greiða götu þeirra. Næsta skref verður heimsókn til að skoða húsnæðismálin með eigin augum og í framhaldi af því er stefnt að því að setja á laggirnar stefnumótunarhóp til að vinna heildræna stefnu borgarinnar í málefnum erlendra kvenna. Það voru glaðar konur sem gengu af hans fundi. Borgarstjóri sýndi enn og aftur að hann er maður aðgerða og lausna og traustur vinur lítilmagna og undirmálsfólks í samfélagi okkar. Þátturinn Borgarstjórinn verður frumsýndur á Stöð 2 í kvöld.
Bíó og sjónvarp Mest lesið Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Lífið Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Lífið Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða í dag Makamál „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Lífið Matt Brown er látinn Lífið Áslaug býður í partý Lífið Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Lífið „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Lífið Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Lífið „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Lífið Fleiri fréttir Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Ástin sem eftir er sigursælust á Eddunni „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Barátta við fíkn, íslensk millistétt og æðavarp á Skjaldborg Rick og Morty á stóra skjáinn Nítján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Sjá meira