Füchs sýnir að hann getur auðveldlega sparkað í NFL-deildinni | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 15. september 2016 12:00 Christian Füchs ætlar sér í NFL. mynd/skjáskot
Austurríski bakvörðurinn Christian Füchs á sér draum um að sparka í NFL-deildinni í amerískum fótbolta eftir að knattspyrnuferlinum lýkur. „Minn metnaður er sá að verða sparkari í NFL-deildinni. Ég er ekkert að grínast með það,“ sagði Füchs ákveðinn í viðtali undir lok síðasta tímabils í ensku úrvalsdeildinni. Bakvörðurinn örvfætti fékk tækifæri til að sýna hvort hann gæti virkilega sparkað í NFL-deildinni í þætti BBC um deildina sem verður sýndur á laugardaginn. Brot úr þættinum er komið á vef BBC en þar hittir Osi Umenyiora, fyrrverandi leikmaður New York Giants og tvöfaldur Super Bowl-meistari, Füchs á æfingasvæði Leicester. Vallarmarksstöngum var komið fyrir þannig Füchs gæti æft sig en hann fór létt með að klára 25 jarda og 40 jarda vallarmörk. Hann reyndi svo við 55 jarda vallarmark og setti boltann á milli stanganna en fyrir þá sem ekki þekkja mikið til NFL-deildarinnar er það nánast eins langt og vallarmörkin verða. Füchs segist eiga svona 2-3 ár eftir hjá Leicester og eftir það er hann spenntur fyrir að spreyta sig í NFL-deildinni. Þessa ótrúlegu hæfileika Füchs má sjá hér.
Enski boltinn NFL Mest lesið KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Fótbolti Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Íslenski boltinn „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Íslenski boltinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Enski boltinn Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira