Arnar: Komu upp ákveðnir hlutir Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 19. september 2016 19:07 Arnar Grétarsson vísir/stefán
Damir Muminovic og Gísli Eyjólfsson misstu sæti sín í byrjunarliði Breiðabliks fyrir leikinn gegn ÍBV í Kópavogi í kvöld og gekk orðrómur um að þeir hafi verið settir í agabann. „Það komu upp ákveðnir hlutir og fyrir vikið byrjuðu ekki ákveðnir menn,“ sagði Arnar Grétarsson um agabannið en hann vildi ekki greina frekar frá því. Breiðablik átti eitt liða möguleika á að koma í veg fyrir að FH yrði Íslandsmeistari en til þess að það gerðist hefði Breiðablik þurft að vinna þrjá síðustu leiki sína og FH að tapa sínum tveimur síðustu. Það gerðist ekki því Breiðablik og ÍBV gerðu 1-1 jafntefli og getur Breiðablik í raun þakkað fyrir stigið miðað við þann fjölda færa sem ÍBV fékk umfram heimamenn. „Ég held að við megum prísa okkur sæla með eitt stig í þessum leik. Við mættum ekki til leiks í fyrri hálfleik. Hvers vegna veit ég ekki. „Þeir voru miklu gimmari. Þeir unnu fyrsta og annan bolta og vildu þetta miklu meira en við. Það er sorglegt. „Í seinni hálfleik þá var líf í okkur fyrstu 25 mínúturnar. Þá réðum við gangi leiksins en aftur fjarðaði þetta út og mér fannst þeir líklegri heldur en við. Við vorum heppnir að sleppa bara með stig. „Ég ætla að vona að hann hafi verið rangstæður. Það væri súrt ef hann væri ekki rangstæður. Það hefði verið gott að geta unnið þegar þú ert lélegur en það hefði ekki verið sanngjarnt í kvöld. „Við hefðum getað komið okkur í skemmtilega stöðu og haldið mótinu aðeins á lífi en FH er vel að titlinum komnir,“ sagði Arnar og óskaði FH til hamingju. „Nú er bara baráttan um annað sætið sem heldur áfram. Við þurfum að gera mun betur til að tryggja Evrópusætið, það er ljóst.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið England - Ísland 2-0 | Tveggja marka tap gegn Evrópumeisturunum Fótbolti Ronaldo flogið til Spánar og staðan verri en talið var Fótbolti Utan vallar: Græðgi undir hatti heilsu Fótbolti Ætla að gefa leikinn frekar en að spila án stuðnings Fótbolti Óttast að landsliðskonur verði stimplaðar föðurlandssvikarar Fótbolti Madueke og Eze afgreiddu C-deildarliðið Enski boltinn FH vann tvöfalt aðra helgina í röð Sport Gæti orðið vandræðalegt fyrir FIFA Fótbolti Í fyrsta sinn á Íslandi: Kolbeinn mætir austurrískum rotara í Gamla bíó Sport „Ég hef ekkert að sanna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Sjá meira