Helena tekur við ÍA Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. september 2016 19:11 Á myndinni eru Sævar Freyr Þráinsson, varaformaður KFÍA, Helena Ólafsdóttir, Magnús Guðmundsson, formaður KFÍA. Fyrir aftan standa núverandi þjálfarar Steindóra Steinsdóttir og Kristinn Guðbrandsson. mynd/ía
Helena Ólafsdóttir hefur verið ráðin þjálfari meistaraflokks kvenna fyrir næsta tímabil hjá Knattspyrnufélagi ÍA. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu. Helena tekur við liðinu af hjónunum Kristni Guðbrandssyni og Steindóru Steinsdóttur sem munu stýra ÍA út tímabilið í Pepsi-deild kvenna. Kristinn og Steindóra verða áfram í baklandi meistaraflokks kvenna auk þess að sinna fleiri verkefnum hjá félaginu. Helena er einn reyndasti þjálfari landsins. Hún starfaði síðast sem þjálfari hjá FK Fortuna í Álasund í Noregi. Þar áður þjálfaði hún meistaraflokk hjá FH, Selfoss, KR og Val. Helena þjálfaði einnig A-landslið kvenna á árunum 2003-04. Helena var einnig sigursæll leikmaður á sínum tíma og varð margfaldur Íslandsmeistari með KR á árunum 1993-99. Hún lék einnig með ÍA og varð m.a. bikarmeistari með liðinu árið 1992. Helena lék 8 A-landsleiki fyrir Ísland. Í sumar hefur Helena stýrt umfjöllun Stöðvar 2 Sports um Pepsi-deild kvenna. Einnig hefur verið gengið frá ráðningu aðstoðarþjálfara liðsins en Aníta Lísa Svansdóttir mun aðstoða Helenu við þjálfun liðsins. ÍA er í tíunda og neðsta sæti Pepsi-deildar kvenna með átta stig, tveimur stigum frá öruggu sæti, þegar fjórum umferðum er ólokið.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Pílukastarinn biðst afsökunar á að hafa fallið á lyfjaprófinu og öllum lygunum Sport Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Enski boltinn Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Íslenski boltinn Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Fótbolti Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Enski boltinn Tvær títanplötur settar í Jake Paul eftir kjálkabrotið Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Enski boltinn Fleiri fréttir Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Sjá meira