Stjarnan og KR með mikilvæga sigra Anton Ingi Leifsson skrifar 6. september 2016 19:23 Harpa skoraði tvö í dag. vísir/anton
Stjarnan komst aftur á beinu brautina í Pepsi-deild kvenna með 3-1 sigri á ÍA eftir að hafa lent 1-0 undir. Megan Dunningan kom ÍA yfir á 21. mínútu og þannig var staðan í hálfleik, en Harpa Þorsteinsdóttir jafnaði fyrir Stjörnuna á 47. mínútu. Katrín Ásbjörnsdóttir kom svo Stjörnunni yfir á 63. mínútu og markamaskínan Harpa Þorsteinsdóttir skoraði annað mark sitt og þriðja mark Stjörnunnar í uppbótartíma. Stjarnan er nú með fimm stiga forskot á Breiðablik sem á þó leik til góða gegn ÍBV sem var frestað í dag vegna veðurs. ÍA er í vondri stöðu, á botni deildarinnar með átta stig, fjórum stigum frá öruggu sæti. KR kom sér upp úr fallsæti með sigri á Fylki 3-1. Anna Birna Þorvarðardóttir kom KR yfir af vítapunktinum á 36. mínútu og staðan 1-0 í hálfleik. Jordan O'Brien kom KR svo í 2-0 á 62. mínútu og O'Brien var aftur á ferðinni á 82. mínútu með öðru marki sínu og þriðja marki KR. Kristín Erna Sigurlásdóttir minnkaði muninn fyrir Fylki, sjö mínútum fyrir leikslok og lokatölur 3-1. KR er því með tólf stig í áttunda sæti, stigi fyrir ofan fallsætin, en Fylkir er í sjöunda sætinu með þrettán stig og er því enn í bullandi fallhættu. Úrslit og markaskorarar eru fengnir frá úrslit.net.Meira má lesa um leik FH og Selfoss hér.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Fótbolti Reese rífur í sig metin Körfubolti Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Fótbolti Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Fótbolti Fleiri fréttir Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára „Maður var aldrei alveg rólegur“ Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Haukar komnir upp í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Sjá meira