Sunnudagskvöldið undirlagt Pepsi-deildinni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. ágúst 2016 10:00 Úr leik Fjölnis og FH fyrr í sumar en bæði lið verða í beinni útsendingu á sunnudag. Vísir
Áhugamenn um íslenska knattspyrnu fá stóran skammt af Pepsi-deildinni á sunnudag en þá fara fimm leikir fram í deildinni. Þrír þeirra verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hliðarrásum. Á Stöð 2 Sport verður samfelld sex klukkustunda útsending frá Pepsi-deildinni en hún hefst með upphitun fyrir viðureign Fjölnis og Fylkis klukkan 17.30 og lýkur þegar Pepsi-mörkin fara úr útsendingu um klukkan 23.30. Eftir beina útsendingu í Grafarvoginum verður skipt yfir í beina útsendingu frá Hlíðarenda þar sem Reykjavíkurslagur Vals og KR verður sýndur en sá leikur hefst klukkan 20.00. Að þeirri útsendingu lokinni taka svo Hörður Magnússon og sérfræðingar hans við í Pepsi-mörkunum og gera upp sautjándu umferðina. Þess fyrir utan verður sýnt frá leik Víkings Ólafsvíkur og FH í beinni útsendingu klukkan 17.50 á sunnudag á Stöð 2 Sport auk þess sem að viðureign Breiðabliks og Stjörnunnar verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 16.30 á laugardag. Alls verða því fjórir leikir af sex í 17. umferð Pepsi-deildar karla í beinni sjónvarpsútsendingu. Öllum leikjum verður þar að auki gerð góð skil á íþróttavef Vísis, þar sem allir leikir eru í beinni textalýsingu. Upplýsingar um beinar útsendingar sem eru fram undan á stöðvum Stöðvar 2 Sports má finna hér.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“