Eygló Ósk um rifna sundbolinn: Ég var bara í stresskasti þarna inn í klefanum Óskar Ófeigur Jónsson í Ríó skrifar 7. ágúst 2016 16:47 Eygló Ósk Gústafsdóttir togar í sundbolinn sinn fyrir sundið. Vísir/Anton
Eygló Ósk Gústafsdóttir lét ekki rifinn sundbol koma í veg fyrir það að hún næði að synda sig inn í undanúslitin í 100 metra baksundi á Ólympíuleikunum í Ríó í dag. Sundbolur Eyglóar rifnaði rétt fyrir sundið og það var enginn tími fyrir hana til að redda sér nýjum sundbol. „Ég var að laga sundbolinn og toga í hann. Þá allt í einu heyrði ég hann „poppa". Ég var bara í stresskasti þarna inn í klefanum," sagði Eygló Ósk. „Allar stelpurnar voru að segja að það væri hægt að bíða eftir mér en ég sagði að það væri ekki nægur tími. Ég var nefnilega bara í næsta riðli sem átti að labba inn," sagði Eygló. „Ég labbaði bara inn og hélt utan um rassinn. Þetta er góð saga útaf því að ég komst inn en annars væri þetta ekki góð saga," sagði Eygló. Þetta háði Eyglóu augljóslega fyrstu 50 metrana en hún átti mjög góða seinni ferð og þó að Íslandsmetið hafi ekki fallið synti hún nógu hratt til að ná sextánda og síðasta sætinu inn í undanúrslitin sem fara fram í nótt. Hér fyrir neðan má sjá mynd sem Magnús Tryggason, flokkstjóri í sundinu, tók af rifunni á sundbol Eyglóar.Rifinn sundbolur Eyglóar.Mynd/Magnús Tryggvason
Ólympíuleikar Ólympíuleikar 2016 í Ríó Sund Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Fótbolti Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Handbolti Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka Enski boltinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu Enski boltinn „Allt er svo erfitt“ Enski boltinn Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Fótbolti Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Fleiri fréttir Fasistakveðjur til ungs Mussolini vekja athygli Hrasaði viljandi og sló alla út af laginu Dauðþreyttur á sömu spurningum: „Fólk heldur að það sé hægt að ýta á takka“ Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Sagði frá eigin lyfjamisnotkun og er kominn í bann Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Dagskráin í dag: Það er pílan Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Cullen stormaði út af blaðamannafundi White og Littler mætast í 16-manna úrslitum Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Martin og félagar burstuðu botnslaginn Sjá meira