Kári Stefánsson segir ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna hafa holað velferðarkerfið að innan Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 9. ágúst 2016 07:46 Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. vísir/vilhelm
Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir að svo virðist vera sem pólitísk hugmyndafræði sé „vitagagnlaust drasl“ þegar menn eru komnir á valdastóla. Þannig veiti pólitísk hugmyndafræði stjórnmálamanna kjósendum ekki mikla innsýn inn í það sem stjórnmálamennirnir vilji gera ef og þegar þeir komast til valda. Kári tekur dæmi um Samfylkingu og Vinstri græn hafi „alltaf lofað að hlúa að velferðarkerfinu og verja það gegn öllu illu og síðan farið létt með að svíkja það.“ Þetta segir Kári í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag um íslenska heilbrigðiskerfið en þar segir hann meðal annars um ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna og pólitíska hugmyndafræði: „Það var ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, Samfylkingar og Vinstri grænna, sem endanlega losaði mig við þá tálsýn að pólitísk hugmyndafræði sem menn aðhyllast hafi forspárgildi um það hvernig þeir kunni að haga sér á valdastólum. Þegar í harðbakkann sló holaði hún velferðarkerfið að innan, lét utanríkisþjónustuna í friði, reisti Hörpu (að vísu vildi Katrín Jakobsdóttir láta mála vinstri hliðina á henni græna en það gleymdist) og byrjaði að bora gat í gegnum Vaðlaheiðina. Þetta var fyrsta hreinræktaða félagshyggjuríkisstjórnin í sögu lýðveldisins! Þetta ginnungagap milli pólitískrar hugmyndafræði og hegðunar á valdastólum gerir það að verkum að kjósendur verða að horfa framhjá eða í gegnum yfirlýsta hugmyndafræði þegar þeir ákveða hvernig þeir eigi að kjósa menn til góðra verka.“Allir stjórnmálaflokkarnir eins þegar þeir komast til valda Að mati Kára er munurinn á stjórnmálaflokkunum aðeins sýnilegur þegar þeir eru í stjórnarandstöðu; þá séu vinstri flokkar vinstri flokkar og hægri flokkar hægri flokkar. „Þegar þeir eru komnir í stjórn eru þeir allir eins án tillits til hægri eða vinstri, upp eða niður, himnaríkis eða helvítis,“ segir Kári. Hann segir það þó gleðiefni að í aðdraganda þingkosninga sem verða í haust virðist flestir stjórnmálaflokkarnir staðsetja sig vinstra megin á miðjunni viðað við það hvar þeir voru á pólitíska ásnum fyrir seinustu kosningar. Kári tekur dæmi um viðtal við Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins, í Morgunblaðinu fyrir skemmstu þar sem hann sagðist vilja setja heilbrigðismálin í forgang á næsta kjörtímabili: „Ljósasta dæmið um þetta kom úr ólíklegustu áttinni þegar Bjarni Benediktsson sagði í blaðaviðtali að hann liti svo á að það væri kominn tími til þess að hætta að lækka skatta og byrja að hlúa að innviðum samfélagsins eins og velferðarkerfinu. Hann sagði líka að hann liti svo á að hlutverk ríkisins væri að hlúa að þeim sem minna mættu sín. Hinir gætu séð um sig sjálfir. Í þessu viðtali lét hann Sjálfstæðisflokkinn taka stórt skref í átt að miðjunni og minnti með því um margt á afabróður sinn og alnafna. Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með viðbrögðum pólitískra andstæðinga Bjarna við hugmyndafræðilegri endurfæðingu hans. Í stað þess að taka því fagnandi að Sjálfstæðisflokkurinn heiti því að styðja lítilmagnann og velferðarkerfið og hætti að eyða öllum kröftum sínum í að hlúa að heilsu ríkisfjármála þá hæðast þeir að honum fyrir vikið.“Vill að Bjarni leggi fram frumvarp til fjáraukalaga þar sem meira fé verði varið í heilbrigðiskerfið Eins og flestum er kunnugt hefur Kári verið ötull talsmaður þess að efla íslenskt heilbrigðiskerfi og stóð meðal annars fyrir undirskriftasöfnun fyrr á þessu ári þar sem stjórnvöld voru hvött til þess að eyða 11 prósentum af vergri landsframleiðslu í heilbrigðiskerfið. Yfir 80 þúsund manns skrifuðu undir. Í grein sinni í dag segir Kári að þeir kjósendur sem vilja að hlúð sé að velferðarkerfinu og þá sérstaklega heilbrigðiskerfinu standi frammi fyrir því að vera „annars vegar með félagshyggjuflokkana, Samfylkingu og Vinstri græna, sem hafa alltaf lofað að hlúa að velferðarkerfinu og verja það gegn öllu illu og síðan farið létt með að svíkja það og hins vegar Sjálfstæðisflokkinn sem hefur hingað til ekki einu sinni séð ástæðu til þess að lofa. Nú hefur Bjarni fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins lofað og er því kominn í aðstöðu til þess að efna sem við hljótum að fagna þótt við hörmum þá staðreynd að hann sé líka í aðstöðu til þess að svíkja.“ Í lok greinarinnar leggur Kári síðan til verkefni fyrir sumarþing sem kemur saman í næstu viku: „Fjármálaráðherra leggi fram frumvarp til fjáraukalaga nú í ágúst þar sem fé er veitt til þess að losa okkur við greiðsluþátttöku sjúklinga, Landspítalinn er efldur og heilsugæslan endurreist. Allir þingmenn, stjórnarandstöðu jafnt sem stjórnar, greiði frumvarpinu atkvæði og sýni þannig að þeir geri sér grein fyrir því að þeirra hlutverk sé að þjóna þjóðinni sem vill að þetta gerist. Að þessu loknu gætum við gengið til kosninga með svolitla gleði í hjarta og greitt atkvæði með þeim flokki sem við höfum minnsta fyrirlitningu á. Ef þetta gerist ekki er hætta á því að við kjósum öll Píratana vegna þess að þeir hafa í raun réttri enga pólitíska hugmyndafræði að hunsa, hafa ekki haft tækifæri til þess að svíkja loforð og þótt þeir séu harla lítið sem ekki neitt eru þeir býsna hip og kúl. Það er nefnilega þannig að óplægður akur í hraungrýti getur verið svo miklu meira aðlaðandi en illgresið í garðinum heima.“ Grein Kára má lesa í heild sinni með því að smella á hlekkinn hér að neðan.
Tengdar fréttir Svolítil gleði í hjarta En það er bara þannig með þessar pólitísku hugmyndafræðir að þær virðast vera vitagagnslaust drasl þeim sem eru komnir á valdastóla og veita okkur kjósendum litla innsýn í það sem þeir kynnu að gera sem við viljum koma þangað. 9. ágúst 2016 06:00 Mest lesið Trump-liðar heita hefndum Erlent Ríkið situr á þúsundum hektara af framræstu votlendi Innlent Yfirlæknir gagnrýnir auglýsingu gegn lyfi við RS-veiru Innlent Sagði frá fyrirætlunum sínum í SMS-i fyrir morðið Erlent „Ég mun ekki sjá eftir honum“ Innlent Trump höfðar 15 milljarða dala mál gegn New York Times Erlent Frumvarp um afnám laga um orlof húsmæðra lagt fram í tíunda sinn Innlent „Þetta var vissulega ekki í starfslýsingunni“ Innlent Ísland ekki óhult ef til átaka kemur í Evrópu Innlent Samþykkja að framselja Úkraínumann vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Erlent Fleiri fréttir Merki um að gjá í samfélaginu sé að stækka Skýrt að Ísland sé ekki griðastaður stríðsglæpamanna Stjórnvöld ætli að hafa yfirhöndina gagnvart skipulögðum glæpahópum Ísraelar sakaðir um þjóðarmorð og dómsmálaráðherra styður lögregluna í aðgerðum gegn Hells Angels Lokun Sorpu á Dalvegi enn frestað Munu áfram stýra fastanefndunum Fá að halda framkvæmdum áfram í bili Eldur í geymslu í blokk á Selfossi Yfirlæknir gagnrýnir auglýsingu gegn lyfi við RS-veiru Flestir sem skráðu sig í Skorradalshrepp fá að kjósa Frumvarp um afnám laga um orlof húsmæðra lagt fram í tíunda sinn Ríkið situr á þúsundum hektara af framræstu votlendi Sló töskunni í vélarhlíf lögreglubifreiðar „Þetta var vissulega ekki í starfslýsingunni“ Hefur ekki áhyggjur af svindli með nýju námsmati Þrjú innbrot og alltaf fúlsað við verkunum: „Þetta er kannski smá yfirlýsing“ Ísland ekki óhult ef til átaka kemur í Evrópu „Ég mun ekki sjá eftir honum“ Fjöldi glæpahópa á Íslandi hefur tvöfaldast á tíu árum „Ekki algengt að svona lekar verði“ Stóraukning skipulagðrar glæpastarfsemi og innbrotahrina hjá listamanni Flugvél með fjórum innanborðs fór út af flugbraut Kallar eftir náðun Kouranis og brottvísun strax á morgun Tiltekt ríkisstjórnar eins og að taka sokk af gólfi unglings Ingvar aftur kominn í leyfi frá þingstörfum Oddvitarnir ætla sér stóra hluti eftir átta mánuði Loka fyrir heitt vatn vegna leka á Bústaðavegi Tvíburarnir fengu ár í viðbót Hlaut náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Vara við svikapóstum um ólöglegar klámsíður og reikninga frá raforkusölum Sjá meira
Svolítil gleði í hjarta En það er bara þannig með þessar pólitísku hugmyndafræðir að þær virðast vera vitagagnslaust drasl þeim sem eru komnir á valdastóla og veita okkur kjósendum litla innsýn í það sem þeir kynnu að gera sem við viljum koma þangað. 9. ágúst 2016 06:00
Ísraelar sakaðir um þjóðarmorð og dómsmálaráðherra styður lögregluna í aðgerðum gegn Hells Angels