Pepsi-mörk kvenna: Sonný átti að verja þetta | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. júlí 2016 11:00
Breiðablik og Valur skildu jöfn, 1-1, í toppslag í 9. umferð Pepsi-deildar kvenna á þriðjudaginn. Blikar voru mun sterkari aðilinn í leiknum en Margrét Lára Viðarsdóttir bjargaði stigi fyrir Valskonur þegar hún skoraði með góðu langskoti níu mínútum fyrir leikslok. Í Pepsi-mörkum kvenna var farið yfir þetta mikilvæga mark Margrétar Láru og hvort vörn og markvörður Breiðabliks hefði ekki átt að koma í veg fyrir það. „Þetta er leikmaður [Margrét Lára] sem hrekkur af varnarlínunni. Við sjáum þrjá miðjumenn Breiðabliks, enginn þeirra lokar á sendingarleið né gerir sig líklegan til að loka svæðinu. Auðvitað á miðjan að vera búin að leysa þetta fyrir löngu síðan,“ sagði Gunnar Rafn Borgþórsson sem var gestur Helenu Ólafsdóttur ásamt Önnu Garðarsdóttur. Gunnar og Anna voru bæði á því að Sonný Lára Þráinsdóttir, markvörður Blika, hefði átt að verja skot Margrétar Láru. „Þegar aðrir menn hafa gert mistök á markvörðurinn að stíga inn í og verja þetta,“ sagði Gunnar og Anna tók í sama streng. „Skot af 30 metra færi þarf að vera ofboðslega gott til að það fari inn.“Innslagið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira