Eyjakonur áfram á sigurbraut | Söndrurnar sáu um Fylki | Myndir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. júlí 2016 19:59
Tveimur leikjum er lokið í 8. umferð Pepsi-deildar kvenna í fótbolta. Þór/KA gerði góða ferð í Árbæinn og vann 0-2 sigur á Fylki.Jóhanna K. Andrésdóttir, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á Flórídana-vellinum og tók meðfylgjandi myndir. Nöfnurnar Sandra María Jessen og Sandra Stephany Mayor Gutiérrez skoruðu mörk gestanna sem eru búnir að vinna þrjá af síðustu fjórum deildarleikjum sínum. Söndurnar hafa verið drjúgar fyrir Þór/KA í sumar en þær eru báðar komnar með fimm mörk í deildinni og búnar að skora 10 af 16 mörkum liðsins. Þór/KA er í 4. sæti deildarinnar með 14 stig en Fylkir, sem mistókst að fylgja eftir sigrinum á FH í síðustu umferð, í því sjöunda með sjö stig.ÍBV vann sinn þriðja sigur í röð í deild og bikar þegar liðið lagði FH að velli, 2-0, á Hásteinsvelli. Cloe Lacasse kom Eyjakonum í 1-0 strax á 2. mínútu og Sigríður Lára Garðarsdóttir bætti öðru marki við úr vítaspyrnu á 58. mínútu. Lacesse og Sigríður Lára hafa báðar skorað í síðustu þremur leikjum ÍBV sem hafa allir unnist eins og áður sagði. ÍBV er í 5. sæti deildarinnar með 12 stig en Eyjakonur eru heldur betur vaknaðar eftir slæma byrjun á tímabilinu. Það gengur hins vegar lítið hjá FH sem er búið að tapað fimm leikjum í röð. Fimleikafélagið er í 8. sæti með sjö stig og hefur aðeins skorað þrjú mörk í átta fyrstu umferðunum.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri Handbolti Liverpool með fullt hús stiga á meðan Real er rjúkand rúst Fótbolti „Sem betur fer fór ég enn á ný í rétt horn“ Fótbolti Aþena lagði Grindavík Körfubolti Hákon Arnar kom inn af bekknum í mikilvægum sigri Fótbolti Íslendingarnir allt í öllu í Meistaradeildinni Handbolti Haukar voru betri í dag Körfubolti Guardiola allur útklóraður eftir leik Fótbolti Dramatík á Villa Park Fótbolti „Önnur eins vitleysa hefur komið frá þessu félagi“ Handbolti Fleiri fréttir Elfar Árni heim í Völsung Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Sjá meira