Fimm mínútna draumakafli og Stjörnukonur aftur á toppinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. júlí 2016 21:07
Harpa Þorsteinsdóttir skoraði tvö mörk í kvöld þegar Stjörnukonur komust á topp Pepsi-deildar kvenna eftir 3-0 útisigur á FH í Kaplakrika.Eyþór Árnason, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var á leiknum í kvöld og náði þessum myndum hér fyrir ofan. Stjörnukonur gerðu út um leikinn með þremur mörkum á síðustu fimm mínútunum í fyrri hálfleik. Harpa Þorsteinsdóttir hefur þar með skorað þrettán mörk í fyrstu níu leikjum Stjörnuliðsins í sumar og er markahæsti leikmaður deildarinnar. Stjarnan hélt þar með marki sínu hreinu í fyrsta leiknum eftir að liðið endurheimti landsliðskonuna Önnu Björk Kristjánsdóttur. Anna Björk kom á láni frá sænska liðinu Örebro þegar félagsskiptaglugginn opnaði. Stjörnuliðið missti hina öflugu Donna Key Henry meidda af velli strax á 6. mínútu. Varamaður hennar, hin 19 ára gamla María Eva Eyjólfsdóttir, fiskaði hinsvegar vítið sem gaf fyrsta mark Stjörnunnar á 41. mínútu. Aðeins fimm mínútum síðar var staðan orðin 3-0. Agla María Albertsdóttir skoraði fyrst á 45. mínútu og svo skoraði Harpa sitt annað mark í uppbótartíma fyrri hálfleiks með síðustu snertingu fyrri hálfleiksins. Stjörnukonur afgreiddu leikinn með þessum fimm mínútna draumakafla og eftir það var leikurinn í öruggum höndum Garðbæinga. Upplýsingar um markaskorara eru fengnar frá vefsíðunni fótbolti.net.Harpa Þorsteinsdóttir var á skotskónum í kvöld. Hér er Stjarnan um það bil að fá víti sem hún nýtti.Vísir/Eyþór
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira