Hannes lagði upp mark í fyrsta leiknum eftir EM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. júlí 2016 19:06 Hannes og félagar unnu góðan útisigur í dag. vísir/vilhelm
Hannes Þór Halldórsson stóð í marki Bodö/Glimt þegar liðið sótti Start heim í norsku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var fyrsti leikur Hannesar eftir EM í Frakklandi og hann stóð heldur betur fyrir sínu og lagði upp fyrsta mark Bodö/Glimt í 1-4 sigri á útivelli. Hannes og félagar eru í 12. sæti deildarinnar með 15 stig, fjórum stigum frá fallsæti. Start vermir hins vegar botnsætið með aðeins sex stig. Bodö/Glimt náði forystunni á 32. mínútu í leiknum í dag. Hannes átti þá langa sendingu fram völlinn á Tond Olsen sem skoraði. Staðan var 0-1 í hálfleik en á 57. mínútu kom Chidiebere Nwakali boltanum framhjá Hannesi og jafnaði metin. Bæði lið fengu færi til skora eftir jöfnunarmarkið en það voru gestirnir sem reyndust sterkari á lokasprettinum. Henrik Furebotn kom Bodö/Glimt yfir á 68. mínútu og Fitim Azemi og Jens Hauge bættu svo tveimur mörkum við í uppbótartíma. Lokatölur 1-4, Bodö/Glimt í vil.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Sjá meira