Mexíkósk sveifla fyrir norðan | Margrét Lára hetja Vals Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. júlí 2016 20:05 Margrét Lára tryggði Val sigur á Akranesi. vísir/vilhelm
Þremur leikjum er lokið í 7. umferð Pepsi-deildar kvenna. Mexíkósku landsliðskonurnar Stephany Mayor og Natalia Gómez Junco voru í aðalhlutverkum þegar Þór/KA vann góðan 3-0 sigur á Selfossi fyrir norðan. Stephany skoraði tvö fyrstu mörk Þórs/KA á fyrstu 24 mínútum leiksins en hún er búin að skora í fjórum af síðustu fimm leikjum Akureyringa. Natalia bætti svo þriðja markinu við á 85. mínútu. Þór/KA er í 4. sæti deildarinnar með 11 stig, tveimur stigum á undan Selfossi sem er í 6. sætinu. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði eina mark leiksins þegar Valur sótti ÍA heim. Valskonur hafa unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum og eru komnar með 14 stig í 3. sæti deildarinnar. Margrét Lára kom Val í 0-1 á 10. mínútu en gestirnir náðu ekki að skora fleiri mörk gegn botnliði ÍA sem á enn eftir að vinna leik í sumar. Margrét Lára er nú komin með fimm mörk í Pepsi-deildinni í sumar en Harpa Þorsteinsdóttir er sú eina sem hefur gert fleiri (9). Þá rúllaði ÍBV yfir KR á Alvogen-vellinum, 0-5. Eyjakonur eru komnar með níu stig og upp í 5. sæti deildarinnar. KR er hins vegar í 8. sæti með sex stig. Cloe Lacasse og Rebekah Bass skoruðu tvö mörk hvor fyrir ÍBV og Sigríður Lára Garðarsdóttir eitt. Þær skoruðu einnig allar í 5-0 sigrinum á Selfossi í 8-liða úrslitum Borgunarbikarsins á mánudaginn.Úrslitin í kvöld:Þór/KA 3-0 Selfoss 1-0 Sandra Stephany Mayor Gutierrez (2.), 2-0 Gutierrez (24.), 3-0 Natalia Ines Gomez Junco Esteva (85.).ÍA 0-1 Valur 0-1 Margrét Lára Viðarsdóttir (10.).KR 0-5 ÍBV 0-1 Cloe Lacasse (4.), 0-2 Sigríður Lára Garðarsdóttir (13.), 0-3 Rebekah Bass (40.), 0-4 Lacasse (80.), 0-5 Bass, víti (87.).
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira