Mark Arnórs dugði ekki til Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 9. júlí 2016 15:56 Arnór skoraði gott mark vísir/getty
Arnór Smárason skoraði fyrir Hammarby þegar liðið tapaði 4-2 fyrir Häcken á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.Ögmundur Kristinsson og Birkir Már Sævarsson voru líkt og Arnór í byrjunarliði Hammarby í fyrsta sinn frá því að þeir snéru til baka eftir frægðarför á EM í Frakklandi. Ögmundur og Birkir léku allan leikinn en Arnór sem jafnaði metin í 1-1 úr vítaspyrnu var tekinn af leikvelli á 73. mínútu leiksins. Häcken var 2-1 yfir í hálfleik og komst í 3-1 áður en Hammarby minnkaði muninn skömmu fyrir leikslok, aftur úr víti, áður en heimamenn gerðu út um leikinn í uppbótartíma. Hammarby er í þriðja neðsta sæti deildarinnar með 13 stig, sex stigum frá fallsæti.Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn í vörn Norrköping sem lagði Djurgården 1-0 á útivelli. Með sigrinum náði Norrköping Malmö að stigum í toppsætinu en Malmö á leik til góða.Björn Daníel Sverrisson lék allan leikinn fyrir Viking sem tapaði mikilvægum stigum á heimavelli í toppbaráttunni í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Viking tapaði 1-0 fyrir Strömsgodset en liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn í þriðja til fjórða sæti. Í norsku úrvalsdeild kvenna vann Klepp sem Jón Páll Pálmason þjálfar öruggan 6-1 sigur á Trondheims-Örn. Klepp var 3-1 yfir í hálfleik en liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn. Klepp er með 18 stig í 8. sæti deildarinnar.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Sjá meira