Þetta er barinn sem Íslendingar ætla að hittast á í París í dag Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. júní 2016 07:00 O'Sullivans er við hliðina á Moulin Rouge. Mynd af heimasíðu O'Sullivans barnum
Tvö stuðningsmannasvæði fyrir Evrópumótið er að finna í París en Íslendingar mæta Austurríki í lokaleik F-riðils í frönsku höfuðborginni á morgun. Svæðið nærri Saint-Denis verður hins vegar lokað til 17:30 á morgun og svæðið við Eiffel-turninn verður ekki opnað fyrr en klukkan 15 að staðartíma, þremur tímum fyrir leik. Af þessum ástæðum hefur Tólfan, stuðningssveit landsliðsins, tekið til sinna ráða og boðar til stuðningsmannahittings í Moulin Rouge fyrir utan O’Sullivan’s barinn sem er rétt við hliðina á Rauðu myllunni. Þar ætla menn að syngja og tralla áður en haldið verður á leikvanginn klukkan 15 að staðartíma. Staðsetningin er ákveðin í samráði við íslensku lögregluna ytra. Leikvangurinn verður opnaður klukkan 15 en til að komast þangað er best að taka Metro lest númer 13, fara í gegnum sjö stopp og svo er um tíu mínútna ganga að leikvanginum. Miklum hita er spáð í París á morgun og hvetja Tólfumenn fólk til að huga að sólarvörn og innbyrða vatn á milli áfenga drykki, ætli fólk á annað borð að drekka þá. Tólfumenn ætla að mæta í stúkuna tveimur tímum fyrir leik og mála stúkuna bláa. Nánari upplýsingar á heimasíðu Tólfunnar.Að neðan má sjá EM í dag frá París í morgun.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Fótbolti Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Víkingar með bakið upp við vegg Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Náði að plata Óskar Örn Sport Fleiri fréttir Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Sjá meira