Eitt mark dugði Blikum | Þór/KA rúllaði yfir FH Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. júní 2016 16:20 Fanndís átti þátt í sigurmarki Blika. vísir/ernir
Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu sinn annan leik í röð þegar liðið sótti Fylki heim í Árbæinn í 5. umferð Pepsi-deildar kvenna í dag. Aðeins eitt mark var skorað en það gerði hin 18 ára Esther Rós Arnarsdóttir á 73. mínútu eftir að skalli Fanndísar Friðriksdóttur fór í stöngina. Þetta var annað mark Estherar í sumar en hún lék sem lánsmaður með ÍBV í fyrra. Það gengur hvorki né rekur hjá Fylki sem hefur ekki enn unnið leik í Pepsi-deildinni í sumar; gert þrjú jafntefli og tapað tveimur leikjum. Liðið hefur aðeins skorað fjögur mörk en aðeins FH hefur gert færri (2).Þór/KA er komið upp í 4. sæti Pepsi-deildarinnar.vísir/antonÞór/KA átti ekki í miklum vandræðum með að leggja FH að velli í Kaplakrika. Lokatölur 0-4, Akureyringum í vil. Með sigrinum komst Þór/KA upp í 4. sæti deildarinnar en liðið hefur halað inn átta stig í fyrstu fimm umferðunum. FH er í sætinu fyrir neðan en nýliðarnir hafa tapað tveimur leikjum í röð eftir frábæra byrjun á tímabilinu. Landsliðskonan Sandra María Jessen kom Þór/KA yfir á 37. mínútu eftir sendingu frá nöfnu sinni, Stephany Mayor Gutierrez. Þetta var fjórða mark Söndru Maríu í deildinni á tímabilinu. Staðan var 0-1 í hálfleik og allt fram á 60. mínútu þegar hin mexíkóska Gutierrez skoraði sitt annað deildarmark í sumar. Andrea Mist Pálsdóttir jók muninn í 0-3 fimm mínútum síðar og Natalia Ines Gomez Junco Esteva skoraði svo fjórða markið tíu mínútum fyrir leikslok.Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar af urslit.net og fotbolti.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira