Ljósmyndari Vísis myndaði strákana okkar í bak og fyrir á hótelinu í Annecy Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. júní 2016 16:30 Hörður Björgvin Magnússon og Hannes Þór Halldórsson sýndu ljósmyndara fréttastofunnar sundlaugina í bakgarðinum. Vísir/Vilhelm
Hótelið Les Trésoms í Annecy er viðverustaður karlalandsliðsins í knattspyrnu á meðan á EM stendur. Strákarnir okkar eru með hótelið útaf fyrir sig og buðu íslenskum fjölmiðlamönnum að kíkja í heimsókn síðdegis í dag. Afar ströng öryggisgæsla er í kringum hótel strákanna en íslenska pressan var sótt á sitt hótel og ekið í rútu landsliðsins á hótelið sem er í hinum enda bæjarins. Þar fer vel um okkar menn, þeir voru afslappaðir og spiluðu pool, Playstation, voru í nuddi og horfðu á leiki á EM milli þess sem þeir spjölluðu við blaðamennina. Hótelið er hið glæsilegasta og greinilegt á strákunum að þeir eru ánægðir með aðstæður. Útsýnið yfir bæinn er einstakt, þeir geta látið eins og heima hjá sér enda engir aðrir gestir á hótelinu. Sólin skein þegar blaðamenn litu við en á hótelinu má meðal annars finna glæsilega sundlaug og púttvöll sem var gerður sérstaklega fyrir strákana. Heimsóknin varði í klukkustund og nýtti Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, tímann vel og tók meðfylgjandi myndir. vísir/vilhelm
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Fótbolti Fleiri fréttir Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Sjá meira