Handtökur í Guðmundarmáli varða líkflutning: Kunningi þegar viðurkennt að hafa flutt lík Guðmundar Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 16. júní 2016 08:41 Frá meðferð málsins árið 1978. Vísir
Framkvæmd var húsleit í tengslum við handtökur tveggja manna sem eru taldir tengjast hinu svokallaða Guðmundar- og Geirfinnsmáli í fyrradag. Lögreglan framkvæmdi leitina og fór hún fram á heimili sambýliskonu annars þeirra. Morgunblaðið greinir frá þessu. Samkvæmt heimildum blaðsins tengist rannsókn lögreglu á aðkomu þessara tveggja manna aðallega því hvort þeir hafi komið að flutningi á líki Guðmundar Einarssonar. Guðmundur hvarf árið 1974 og hefur ekki spurst til hans síðan. Árið 1980 var þó maður sakfelldur fyrir að hafa flutt líkið á Guðmundi Einarssyni. Hann dró aldrei framburð sinn tilbaka. Sjá einnig: Ábending í Guðmundar- og Geirfinnsmáli ekki glæný Líkamsleifar Guðmundar fundust aldrei en björgunarsveitir og lögregla leituðu hans um nokkra hríð þar til ákveðið var að hætta leit.Sævar Cieselski játaði á sig morðið á Guðmundi en hann dró síðar játninguna tilbaka og hélt fram sakleysi sínu til dauðadags.Næstum tveimur árum síðar, upp úr miðjum desember 1975, voru Erla Bolladóttir og Sævar Ciesielski í gæsluvarðhaldi hjá lögreglunni vegna póstsvikamáls. Í langri yfirheyrslu 20. desember það sama ár er Erla spurð hvort eitthvað sé hæft í þeim sögusögnum sem lögreglu hafi borist til eyrna, að Sævar hafi verið viðriðinn hvarfið á Guðmundi. Vitnisburður Erlu leiðir til handtöku Kristjáns Viðars Viðarssonar og Tryggva Rúnars Leifssonar í janúar 1976. Kunningi þegar játað á sig líkflutning Þeir játuðu á sig glæpinn eftir nokkra daga í gæsluvarðhaldi, Sævar 10 dögum eftir handtöku og Tryggvi Rúnar 15 dögum eftir handtöku. Kristján Viðar viðurkenndi nokkrum dögum eftir handtöku að hafa verið á Hamarsbraut 11 þar sem átök hafi orðið en greint er frá þessum átökum í dómi Hæstaréttar sem finna má á vef Ríkislögreglustjóra. Grundvallaratriði í málinu varðar líkflutning þar sem Erla sagðist upphaflega hafa séð Sævar, Kristján Viðar og Tryggva Rúnar flytja lík í laki úr kjallaraíbúð sem hún bjó þá í ásamt Sævari. Síðar var Albert Klahn Skaftason nefndur í tengslum við líkflutning. Hann játaði við fyrstu skýrslutöku. Sjá einnig: Guðmundar- og Geirfinnsmálið: Tveir menn handteknir og yfirheyrðirLíkið fannst þó aldrei sem fyrr segir. Sævar og Tryggvi drógu játningar sínar tilbaka á vormánuðum 1977. Kristján Viðar dró sinn framburð tilbaka í september 1977. Erla dró hins vegar sinn framburð aldrei tilbaka, ekki fyrr en við endurupptökubeiðni málsins árið 1997.Erla Bolladóttir segir að það að vera höfð fyrir rangri sök láti hana aldrei í friði.vísir/gvaFjórmenningarnir hafa síðan haldið fram sakleysi sínu og barist fyrir því ásamt ættingjum sínum að nafn þeirra verði hreinsað. Þau hafa haldið því fram statt og stöðugt að játningarnar hefðu fengist með vafasömum hætti, þau hefðu verið beitt líkamlegu og andlegu ofbeldi við yfirheyrslur og því neyðst til þess að játa á sig glæpinn. Albert Klahn, sem viðurkenndi að hafa tengst flutningi á líki Guðmundar, hélt sig við sinn framburð við meðferð málsins en hann sagðist hafa flutt líkið frá Hamarsbraut út í Hafnarfjarðarhraun og síðar síðla sumars 1974 flutt það þaðan. Ekki er upplýst hvert. Hann var sakfelldur. Við endurupptökubeiðni árið 1997 sagðist hann ekki muna hvort hann hefði komið að Hamarsbraut þar sem átökin áttu sér stað. RÚV greindi frá því í morgun að mennirnir tveir sem handteknir voru í morgun hefðu áður komið við sögu lögreglu. Þá þekktu þau aðilana sem dæmdir voru í málinu 1980. Endurupptökunefnd skoðar málið nú og ákveður síðar á árinu hvort tilefni sé til að taka málið upp að nýju.
Guðmundar- og Geirfinnsmálin Tengdar fréttir Ábending í Guðmundar- og Geirfinnsmáli ekki glæný Ábending sem lögreglu barst á síðustu árum og barst svo til endurupptökunefndar leiddi til handtöku tveggja manna. Mennirnir hafa báðir hlotið refsidóma. 16. júní 2016 07:00 Guðmundar- og Geirfinnsmálið: Tveir menn handteknir og yfirheyrðir Morðin voru framin árið 1974 en eru til rannsóknar nú að nýju. 15. júní 2016 07:36 Formaður endurupptökunefndarinnar: „Ábending sem var hluti af gögnunum“ Tveir menn handteknir og yfirheyrðir í tengslum við endurupptöku á Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. 15. júní 2016 12:03 Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Fleiri fréttir Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Sjá meira
Ábending í Guðmundar- og Geirfinnsmáli ekki glæný Ábending sem lögreglu barst á síðustu árum og barst svo til endurupptökunefndar leiddi til handtöku tveggja manna. Mennirnir hafa báðir hlotið refsidóma. 16. júní 2016 07:00
Guðmundar- og Geirfinnsmálið: Tveir menn handteknir og yfirheyrðir Morðin voru framin árið 1974 en eru til rannsóknar nú að nýju. 15. júní 2016 07:36
Formaður endurupptökunefndarinnar: „Ábending sem var hluti af gögnunum“ Tveir menn handteknir og yfirheyrðir í tengslum við endurupptöku á Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. 15. júní 2016 12:03