Ferlið var rússíbani Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 2. júní 2016 10:00 Elliott Crosset Hove prýðir fyrstu stilluna úr myndinni Vetrarbræður. Mynd/Maria Von Hausswolff. „
Ferlið var rússíbani, aðalleikarinn minn slasaðist illa í tökum og við vorum útataðir í kalki og leðju mestallan tímann. En þetta var spennandi og áhugavert ferli og erum við mjög ánægð með útkomuna og hlökkum til að senda Vetrarbræður út í heiminn,“ segir Hlynur Pálmason, leikstjóri og handritshöfundur, spurður út í kvikmyndina Vetrarbræður sem væntanleg er í kvikmyndahús snemma næsta árs. Á bak við myndina er sterkt og samheldið teymi sem einnig hefur unnið saman að fyrri myndum Hlyns. Myndin er framleidd af Julie Waltersdorph Hansen hjá Masterplan Pictures í Danmörku í meðframleiðslu með Antoni Mána Svanssyni fyrir Join Motion Pictures á Íslandi. Kvikmyndin Vetrarbræður er fyrsta mynd Hlyns í fullri lengd og er hún öll tekin upp í verkamannabyggð á köldum vetri með dönskum leikurum. Tökum er lokið og er stefnt á að klára eftirvinnsluna í haust svo mögulegt sé að frumsýna seint á árinu eða snemma á næsta ári. Meðal leikara í myndinni er stórleikarinn Lars Mikkelsen en hann er þekktur fyrir hlutverk sitt í hinum geysivinsælu þáttaröðum House of Cards og Borgen.Hlynur útskrifaðist frá Danska kvikmyndaskólanum árið 2013.„Vetrarbræður gerist í einangraðri verkamannabyggð á köldum vetri, myndin segir frá bræðrunum Emil og Johan og þeirra venjum og við verðum vitni að því er ofbeldisfullar deilur brjótast út milli bræðranna og annarrar fjölskyldu á vinnustaðnum. Fókusinn er á yngri bróðurnum, Emil, og þörf hans fyrir að vera elskaður og þráður,“ segir Hlynur. Þrátt fyrir að Hlynur hafi ekki verið áberandi á Íslandi upp á síðkastið er hann talinn vera einn efnilegasti ungi leikstjórinn í Danmörku en hann útskrifaðist frá Danska kvikmyndaskólanum árið 2013. Útskriftarverkefni hans var stuttmyndin Málarinn, með Ingvari E. Sigurðssyni í aðalhlutverki. Myndin hlaut einróma lof og var til að mynda valin besta stuttmyndin á RIFF sem og besta danska stuttmyndin á alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Óðinsvéum en þannig komst hún í forval fyrir Óskarsverðlaunin. Þá hefur stuttmynd Hlyns, Sjö bátar, einnig vakið mikla athygli og hlotið nokkrar alþjóðlegar viðurkenningar síðan hún var heimsfrumsýnd á hinni virtu alþjóðlegu kvikmyndahátíð TIFF í Toronto. Fram undan er nóg um að vera hjá Hlyni en hann er meðal annars að fara af stað með nýja íslenska mynd sem hann kemur til með að taka alfarið upp á Íslandi með íslenskum leikurum. „Næsta verkefni okkar er íslensk kvikmynd í fullri lengd sem heitir Hvítur, hvítur dagur en það verður nútíma „mystery thriller“. Því miður get ég ekki sagt meira á þessum tímapunkti,“ segir Hlynur spenntur fyrir komandi tímum.
Bíó og sjónvarp Mest lesið Stormur fellur á prófinu Gagnrýni Foreldrar mæti með lögfræðing með sér í skólann Lífið Stórafmælið hefur afleiðingar Lífið Ástin blómstrar hjá Steinunni Lífið Bóndinn Sigríður Hlynur missti af 350 þúsund krónum Lífið Íslensku tónlistarverðlaunin: Damon Albarn lét óvænt sjá sig Tónlist Skálað fyrir skíthræddri Unni Menning Miðpunktur kvöldsins í gegnsæjum samfestingi á árshátíð RÚV Lífið Með engan áhuga á kynlífi og vill ekki ræða það Lífið Ofurfyrirsætan opnar sig í fyrsta sinn um ástina Lífið Fleiri fréttir Anora sigurvegari á Óskarnum Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein Snerting, Ljósbrot og Ljósvíkingar bítast um Edduna Bezos bolar Broccoli burt frá Bond Næsti Dumbledore fundinn Bauð Bandaríkin velkomin í hóp konungsríkja Jóhannes Haukur fer mikinn í Marvel stiklu Svaraði kallinu frá Ben Stiller Ljósbrot hlaut aðalverðlaun í Gautaborg Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Sjá meira
Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein