Volvo ætlar ekki að framleiða minni bíl en S40 Finnur Thorlacius skrifar 7. júní 2016 14:45 Volvo XC40 við prófanir og væntanlegur á markað.
Þýsku lúxusbílaframleiðendurnir BMW, Audi og Mercedes Benz hafa öll tekið þátt í söluslagnum um smáa lúxusbíla og hafa öll nú slíka bíla í sölu. Volvo, sem einnig telst lúxusbílaframleiðandi, ætlar hinsvegar ekki að taka þátt í þessum slag og mun ekki framleiða minni bíla en Volvo 40-línuna. Hann verður líklega framleiddur í nokkrum útfærslum og staðfest að þar á meðal sé S40 og XC40, en sá síðartaldi hefur ekki sést áður í framleiðslulínu Volvo. Volvo hefur ekki góða reynslu af framleiðslu minni bíls en Volvo C30 bíll þeirra seldist illa þrátt fyrir ágætt ytra útlits hans. Volvo ætlar að endurnýja allar bílgerðir sínar á næstu 4 árum og nú þegar hefur það verið gert með XC90 jeppann og stóru S90 og V90 bílana, sem leysa af S80 og V70 bílana. Næst hlýtur því að vera að vænta nýrra gerða 40- og 60-línu Volvo bíla. Ýmislegt fleira verður þó á prjónunum hjá Volvo, svo sem bíls sem eingöngu verður drifinn rafmagni og á hann að koma á markað árið 2019.
Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Aflýsa tólf flugferðum frá Ameríku Innlent Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Innlent Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Innlent Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Erlent Dælan anni ekki vatnsmagni Innlent Skráði bóluefni sem dánarorsök án sannana Innlent