Guðmunda Brynja: Fengum stærsta leikinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. maí 2016 13:30 Guðmunda á ferðinni í bikarúrslitaleiknum í fyrra. vísir/andri marinó „
Ég held að við séum líklega með stærsta leikinn. Þetta verður verðugt verkefni,“ sagði Guðmunda Brynja Óladóttir, fyrirliði Selfoss, eftir að dregið var í 16-liða úrslit Borgunarbikars kvenna í höfuðstöðvum KSÍ í hádeginu. Selfyssingar drógust gegn Val sem tjaldaði miklu til fyrir tímabilið. Guðmunda og stöllur hennar hafa komist í bikarúrslit undanfarin tvö ár en töpuðu í bæði skiptin fyrir Stjörnunni. Guðmunda segir markmiðið í ár sé að fara alla leið. „Jú, algjörlega. Það er gott að fá alvöru leik strax. Við spiluðum við þær í bikarnum í fyrra og það var hörkuleikur og ég á ekki von á öðru núna,“ sagði Guðmunda sem er nokkuð sátt með stöðuna á Selfoss-liðinu sem er með þrjú stig eftir fyrstu tvær umferðirnar í Pepsi-deildinni. „Við héldum sama kjarna, fengum tvo mjög góða útlendinga og erum með mjög gott lið. Við erum hæfilega sáttar með byrjunina á tímabilinu,“ sagði Guðmunda. Eins og áður sagði hafa Selfoss og Stjarnan mæst í bikarúrslitum undanfarin tvö ár. En hvar mætast þau núna? „Við Adda [Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar] vorum að tala um að við myndum mætast á Selfossi í undanúrslitum. En mig langar helst að mæta þeim aftur á Laugardalsvelli og vinna þær,“ sagði Guðmunda í léttum dúr að lokum.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri Handbolti Liverpool með fullt hús stiga á meðan Real er rjúkand rúst Fótbolti „Sem betur fer fór ég enn á ný í rétt horn“ Fótbolti Aþena lagði Grindavík Körfubolti Hákon Arnar kom inn af bekknum í mikilvægum sigri Fótbolti Haukar voru betri í dag Körfubolti Íslendingarnir allt í öllu í Meistaradeildinni Handbolti „Önnur eins vitleysa hefur komið frá þessu félagi“ Handbolti Guardiola allur útklóraður eftir leik Fótbolti Dramatík á Villa Park Fótbolti Fleiri fréttir Elfar Árni heim í Völsung Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Sjá meira