Askja með fjórar tegundir tengiltvinnbíla frá Mercedes-Benz Finnur Thorlacius skrifar 26. maí 2016 09:15 Mercedes Benz GLE.
Bílaumboðið Askja býður til glæsilegrar Mercedes-Benz Plug-in Hybrid sýningar nk. laugardag kl. 12-16. Askja býður nú þegar til afhendingar fjórar tegundir af Mercedes-Benz bifreiðum í Plug-in Hybrid útfærslu eða með svonefndum tengiltvinnbúnaði. Um er að ræða sportjeppanna GLE og GLC auk C-Class og S-Class. Mercedes-Benz áætlar að fyrir lok árs 2017 verði 10 mismunandi gerðir Plug-in Hybrid bíla komnir á markað. Segja má að tengiltvinntæknin séu það nýjasta og eftirtektarverðasta í bílageiranum. Tengiltvinnbílar hafa brunavél og rafmótor og bjóða því upp á mikið afl en einnig mjög litla eldsneytiseyðslu. Þessi gerð bíla er því talin afar umhverfismild. Drægnin á rafgeyminum einum saman er 20-40 km eftir gerðum og er þá miðað við bestu aðstæður. Tengiltvinnbíll getur þannig ekið á rafmagninu en síðan tekur brunavélin við þegar rafgeymirinn tæmist. Hægt er að setja bílinn í samband við rafmagn og þannig er hann hlaðinn í venjulegri heimilisinnstungu sem er 230V/16A. Með þessu er tæknin farin að nálgast rafbílinn. Þrátt fyrir mikinn kraft, þar sem til dæmis GLE jeppinn skilar 333 hestöflum í bensínvél og 116 hestöflum með rafmótor þá er þessi 449 hestafla tengiltvinnbíll frá Mercedes-Benz að ná framúrskarandi árangri í eyðslutölum, eða allt frá 3,3 lítrum á hundraðið í blönduðum akstri. Þá er koltvísýringslosunin mjög lág. Hröðun GLE Plug in Hybrid er einnig mjög mikil og tekur aðeins 5,3 sekúndur að ná 100 km hraða.
Mest lesið Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Níu drepnir í drónaárás á rútu Erlent „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Innlent Svalt þokuloft ekki langt undan Innlent Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Erlent Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Innlent Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Innlent Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Erlent Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Innlent