Gleðin við völd í Danslistarskóla JSB 14. maí 2016 10:00 Nemendasýning Danslistarskóla JSB er hápunktur vetrarstarfsins enda má þar sjá frábær atriði.
Danslistarskóli JSB stendur fyrir stuttum og bráðskemmtilegum vornámskeiðum fyrir krakka á aldrinum þrigga til tólf ára. Þar geta krakkar og foreldrar þeirra fengið að kynnast dansinum og séð hvort þau langi að læra meira.Innritun fyrir skólaárið 2016-2017 er einnig hafin.Nemendur í Danslistarskóla JSB eru á öllum aldri. Hér má sjá þá yngstu á nemendasýningunni sem haldin var í Borgarleikhúsinu.„Við höfum haldið þessi vornámskeið í fjöldamörg ár og þau hafa ávallt mælst mjög vel fyrir. Við hugsum þau sem kynningu fyrir krakka og foreldra sem vilja fá örlitla innsýn inn í heim jazzballettsins og um hvað nútímalistdans snýst,“ segir Bára Magnúsdóttir, eigandi Danslistarskóla JSB. Vornámskeiðin hefjast 24. maí, standa yfir í þrjár vikur en kennt er tvisvar í viku. „Það er tilvalið núna þegar skólunum er að ljúka að leyfa krökkunum að hreyfa sig og dansa,“ segir Bára. Boðið er upp á jazzballett fyrir krakka á aldrinum 7-9 og 10-12 ára en dans- og leikjanámskeið fyrir 3-6 ára börn. „Börnin þurfa ekki að hafa lært neitt í dansi áður enda er þetta skemmtileg leið fyrir þau að vita hvort þau hafi gaman af jazzballett,“ segir Bára glaðlega. Hún segir dansinn afar skemmtilegan. „Í jazzballett er alltaf verið að segja einhverja sögu og í raun dregur það fram listamanninn í krökkunum.“ JSB er annars vegar með almennan danslistarskóla sem sérhæfir sig í jazzballett. Námið er vinsælt og fjölbreytt og við hæfi allra. Megináhersla er lögð á jazzdans (street jazz, lyrical jazz, musical jazz, contemporary jazz o.fl., alhliða líkamsþjálfun og danstækni). Hins vegar rekur JSB einnig sérstaka listdansbraut sem hefst með fornámi fyrir 7-9 ára börn en tíu ára gömul geta þau tekið inntökupróf inn á listdansbrautina. Á menntaskólaárum gildir námið í skólanum til 51 einingar. „Við höfum nú opnað fyrir innritun fyrir skólaárið 2016 til 2017 og ég hvet fólk til að skrá börnin sín sem fyrst, bæði þau sem hafa verið í skólanum síðustu ár og þau sem vilja hefja nám í haust, því aðsóknin er iðulega mikil,“ segir Bára. Nánari upplýsingar má fá í síma 5813730 og á jsb.isMörg frábær atriði var að finna á nemendasýningunni.Jazzballett er fjölbreyttur og bráðskemmtilegur.
Mest lesið Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Lífið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Fleiri fréttir Ný vetrarlína Moomin væntanleg í takmörkuðu upplagi „Bio-Kult er eitt af því sem er alltaf til á okkar heimili“ Bragi Páll og Bergþóra með hryllilega fyndnar hrekkjavökusögur Ný eldhúslína sem sækir innblástur í náttúruna Sprite Zero Klan gefur út SS pylsulagið í fullri lengd Tilkoma Neubria leikbreytir að sögn Bergsveins Náttúruleg leið til að endurbæta meltinguna! Um 12.000 manns hafa séð sýninguna Orð gegn orði í Þjóðleikhúsinu MZ Skin – Lúxus húðvörur sem byggja á vísindum og fagurfræði Þetta þurfum við í útihlaupin í vetur Osteostrong á erindi við alla aldurshópa Sprenghlægilegur gamanleikur frumsýndur í október í Þjóðleikhúsinu Fólk öðlast frelsi og hugarró og sumir jafnvel nýtt líf Heitustu haust- og vetrartrendin 2024 Inga Lilý hlaut aðalvinninginn í ár Hefur tekið Nutrilenk í 20 ár og gæti ekki án þess verið Getur hundur hjálpað mér að reima? - Ráðstefna um dýr í starfi með fólki Fallegur golfvöllur á sögulegum slóðum Aldrei haft jafn þykkt hár Eva Ruza skipuleggur húðrútínu sína með L´Oréal Paris Skemmtilegur golfvöllur umkringdur stórkostlegri náttúru Sjá meira