Eygló sjötta og Anton sjöundi | Hrafnhildur með næstbesta tímann inn í úrslit Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. maí 2016 18:30 Eygló Ósk Gústafsdóttir. vísir/anton brink
Þrír íslenskir keppendur voru í eldlínunni á EM í sundi í London nú síðdegis. Eygló Ósk Gústafsdóttir, íþróttamaður ársins 2015, endaði í 6. sæti í úrslitum í 200 metra baksundi. Eygló byrjaði sundið vel og var í 3. sæti eftir fyrstu 50 metrana. Eftir 100 metrana var hún í 4. sæti en Eygló gaf eftir á lokametrunum og endaði að lokum í 6. sæti. Eygló synti á 2:11,03 sem er talsvert frá Íslandsmetinu sem hún setti á HM í Kazan í Rússlandi í fyrra. Anton Sveinn McKee lenti í 7. sæti í úrslitum í 100 metra bringusundi. Anton kom í bakkann á tímanum 1:01,29 en Íslandsmet hans í greininni er 01:00,53. Þá tryggði Hrafnhilfur Lúthersdóttir sér sæti í úrslitum í 100 metra bringusundi. Hrafnhildur keppti í seinni, og mun hraðari undanúrslitariðlinum, þar sem hún kom önnur í bakkann á tímanum 1:07,28. Litháinn Ruta Meilutyte var sú eina sem náði betri tíma en Hrafnhildur í undanúrslitunum en hún synti á 1:06,16. Fjórar bestu sundkonurnar í undanúrslitunum voru með Hrafnhildi í riðli. Úrslitasundið í 100 metra bringusundi kvenna fer fram á morgun en Anton og Eygló verða einnig á ferðinni þá. Anton syndir í undanrásum í 200 metra bringusundi og Eygló í 100 metra baksundi.European Aquatics Championships - London 2016 by lentv Tweets by @VisirSport
Sund Mest lesið Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Handbolti Alfreð mætti með sína menn klára í leik upp á líf eða dauða Handbolti „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Enski boltinn EM í dag: Það eru engar afsakanir í boði Handbolti Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga Enski boltinn „Það trompast allt þarna“ Handbolti Austurríkismenn hjálpuðu Alfreð Handbolti Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Handbolti Fleiri fréttir Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Mourinho kallar nýjustu sögusagnirnar sápuóperu Alfreð mætti með sína menn klára í leik upp á líf eða dauða Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik „Það trompast allt þarna“ Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Guardiola um Haaland: „Hann svaf ótrúlega vel“ Þrjú gull og sjö íslensk verðlaun á Norðurlandamótinu í MMA Austurríkismenn hjálpuðu Alfreð Dagur fagnaði sigri á móti Faxa Marokkó leitar réttar síns hjá FIFA: „Þetta sár grær ekki auðveldlega“ Hörður Björgvin tekinn af velli í hálfleik í unnum leik EM í dag: Það eru engar afsakanir í boði Yfirmaður Jóns Dags í stríði við lögreglu Ráku þjálfarann eftir enn ein vonbrigðin Guéhi genginn til liðs við City „Lífshættulegt“ gólf losnaði í einni af EM-höllunum Bað um að fara frá Keflavík Einar í ræktina en fær ekki að æfa með hópnum Jón Erik skíðaði sig inn á Ólympíuleikana Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Risaleikir í undanúrslitum bikarsins Börsungar brjálaðir út í dómara sem tók þrjú mörk af þeim „Þetta eru svakaleg kaup“ Slóst við boltastráka sem vildu stela handklæðinu Tískuspaðinn Þorleifur fer aftur út Sjá meira