Geir og Guðmundur Hólmar liðsfélagar hjá þriðja félaginu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. apríl 2016 09:00 Geir Guðmundsson fagnar bikarmeistaratitlinum með Guðmundi Hólmari Helgasyni. Vísir/Andri Marinó
Akureyringarnir og frændurnir Geir Guðmundsson og Guðmundur Hólmar Helgason verða áfram liðsfélagar á næstu leiktíð þrátt fyrir að þeir séu báðir á förum frá Val. Geir hefur nefnilega gert tveggja ára samning við Cesson Rennes en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Guðmundur Hólmar hafði áður gert samning við franska efstudeildarfélagið. Geir og Guðmundur Hólmar hafa leikið undanfarin þrjú tímabil með Val í Olís-deild karla en þar á undan léku þeir saman hjá Akureyrarliðinu. Fyrir hjá Cesson Rennes hitta þeir Ragnar Óskarsson, aðstoðarþjálfara liðsins, en hann þjálfaði þá hjá Val og þekkir því vel til frændanna. „Ég hef dreymt um það í fjögur ár að verða atvinnumaður í handbolta og ég er því mjög ánægður með þetta. Ég valdi Frakkland og CRMHB af því að tilboð þeirra var mjög áhugavert. Ég sé fyrir mér gott líf í Rennes og liðið er á góðri leið," sagði Geir í viðtali við heimasíðu Cesson Rennes. Geir grínaðist einnig með það að frændurnir væru enn á ný að spila saman hjá félagi. „Ég held að Gummi geti ekki verið án mín og að hann hafi sett það inn í samninginn sinn að ég kæmi líka. Að öllu gríni slepptu þá erum við frændur og vinir. Við höfum alltaf spilað saman. Það er magnað að við skulum báðir spila saman á okkar fyrsta ári sem atvinnumenn," sagði Geir.
Íslenski handboltinn Handbolti Olís-deild karla Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Körfubolti Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Formúla 1 Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira