Páskaveðrið: Má búast við vetrarfærð yfir helgina Birgir Olgeirsson skrifar 21. mars 2016 10:42 Margir munu leggja land undir fót um páskahelgina. Vísir/Stefán
Þeir sem hyggja á ferðalög milli landshluta um páskana ættu ekki að búast við sumarfæri. Rólegasta veður verður fram eftir vikunni en undir lok hennar er útlit fyrir að það kólni þegar gengur í norðan átt með snjókomu. Það mun því viðra vel til ferðalaga fram að föstudeginum langa en þá má búast við norðaustan átt, 10 til 15 metrum á sekúndu, snjókomu eða él fyrir norðan, en rigningu og slyddu sunnan til, einkum á Suðausturlandi. „Leiðinlegasta veðrið eins og útlitið er núna er á laugardeginum. En útlitið er gott framan af vikunni fyrir þá sem ætla að ferðast,“ segir Haraldur Eiríksson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, sem hvetur fólk til að fylgjast með veðurspám ef það hyggur á ferðalög milli landshluta yfir páskahelgina. Á páskadag og á öðrum degi páska er áfram spá norðan átt með éljagangi fyrir norðan en bjart sunnanlands.Veðurhorfur á landinu næstu daga:Á miðvikudag:Austan 3-8 og víða dálítil rigning eða skúrir. Hiti 2 til 8 stig.Á fimmtudag:Norðaustan og austan 5-15 m/s, hvassast á Vestfjörðum. Rigning eða slydda með köflum, en þurrt að mestu á SV- og V-landi. Hiti 0 til 7 stig, mildast syðst.Á föstudag:Norðaustanátt, víða 10-15 m/s. Snjókoma eða él fyrir norðan, en rigning eða slydda S-til, einkum á SA-landi. Kólnandi veður.Á laugardag:Norðlæg átt og snjókoma, en úrkomulítið sunnan heiða. Hiti 0 til 5 stig við S-ströndina, annars 0 til 5 stiga frost.Á sunnudag:Norðanátt og él, en þurrt og bjart veður S- og SV-lands. Kalt í veðri.
Veður Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Fleiri fréttir Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám Sjá meira